Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 50
46
Bjöm Þórðarson
ANDVARI
lauslæti kvenna og ella um leið hreinlífi og hjúskapardyggð karla.
Þá skal þess getið, að á þessu sama sumri fór Magnús biskup
yfir Vestfirðingafjórðung og sat í Reykholti brúðkaup Gizurar
bróðursonar síns, þá 15 ára að aldri, og Ingibjargar Snorradóttur,
því að Þorvaldur faðir Gizurar „vildi fyrir hvern mun“ að hann
væri þar.
I Guðmundar sögu elztu og Sturlungu segir ekkert frá Guð-
mundi biskupi frá því að hann fór til Noregs 1222 og þar til
hann kemur út 1226. í Guðmundar sögu Arngríms ábóta er
hinsvegar ýmislegt sagt frá Guðmundi biskupi á þessum árum,
sem hér verður að greina að nokkru. En fyrst er þar sú missögn,
að Pétur erkibiskup hafi verið „framgenginn en Þórir secundus
körinn“, er Guðmundur biskup kom til Noregs 1222 (Bps. II.
119), því að það er víst að Guttormur erkibiskup var á lífi þegar
Guðmundur kom þar í land, en lrann fer eftir lát Guttorms til
Björgvin og dvelst þar þangað til Pétur erkibiskup kemur til stóls
síns og þá sækir Guðmundur biskup „hans fund með öllum
skunda“. Erkibiskupinn býður Guðmundi biskupi oft í boð sitt
og gerir honurn nrargan sóma „þar til spillendr koma“ (Bps. II.
119). Þá segir frá því, að þegar Sturlungar, þ. e. Sighvatur og
Sturla, spyrja, að erkibiskupinn er heimkominn og Guðmundur
biskup „vel heyrðr á garðinum“, bera þeir saman ráð sín og draga
eður kúga þá menn, er þeir hugðu virðast mundu „hæstrar raddar
í landinu að fráteknum biskupinum“, til að samlagast sér. Til
skaða biskupsins dicta þeir svo þrungið bréf, að það stendur „með
þrimtigum sakargipta". „Þetta bréf var styrkt með þeim hætti, sem
þá gekk framast um skilríki meðal landa“. Er hér átt við sann-
anir fyrir sakargiptunum. Sendimennirnir, sem fluttu bréfið, kom-
ust ekki til Niðaróss fyrr en litlu fyrir jól, og gengu þá fyrir
erkibiskup og „bera honum bréf íslendinga“. Á níunda dag jóla
kallar erkibiskup saman kórsbræður og aðra lærða menn „á garð-
inum“. Þangað er boðinn Guðmundur biskup og sendimennirnir.
Eru þá upplesin bréf „með svo mörgum sakargiptum sem fyrr var
greint“. Spyr erkibiskup síðan Guðmund biskup, hvað hann eignar