Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 54
50
Bjöm Þórðarson
ANDVARI
vald til að haga siðareglum og helgihöldum innan sýslu sinnar á
mismunandi hátt, ef það var ekki gagnstætt almennum reglum
kirkjunnar. Að vísu var boðorðið um almennar skriptir ekki orðið
að lögum í Noregi 1224 og varð það ekki fyrr en rúmum 40
árurn síðar, en þar sem þetta fyrirmæli var í fullu samræmi við
samþykkt Lateran fundarins 1215, gat þetta höfuðboðorð Magn-
úsar biskups ekki orðið orsök embættissviptingar hans. Þótt beinar
sannanir bresti fyrir því, hver rök hafa legið til þessara aðgerða
erkibiskups, þá getur enginn vafi leikið á því, að rökstuðningur
hans fyrir utanstefnu og embættissvipting Magnúsar biskups eru
ákærur þær er Arngrímur ábóti greinir frá í bréfunum, sem
getið .var hér á undan.
Framvinda mála Guðmundar biskups fyrir erkistólnum á
Niðarósi virðist hafa verið þessi: Eftir komu Guðmundar biskups
til Noregs 1222 hefur Guttormur erkibiskup athugað málin og
stefnir höfðingjum utan, en enginn þeirra gegnir. Erkibiskup
hefur einnig ritað Magnúsi biskupi og hann sendir, eins og áður
var getið, tvo klerka með bréfum sínum til erkibiskups, en hann
andast 6. febr. 1224 án þess að hafa kveðið upp neinn úrskurð.
Að erkibiskupi látnum, svöruðu kórsbræður bréfum Magnúsar
biskups og mál Guðmundar biskups bíður úrskurðar hins nýja
erkibiskups. Er hann hefur kynnt sér allan málavöxt lýsir hann
yfir því við Guðmund biskup, að það sé ekki á valdi erkibiskups
að ráða fram úr málinu, heldur verði Guðmundur að leita úr-
skurðar páfa um það, hvort hann megi framvegis „halda biskups-
lega stétt“. Þegar hinn páfalegi úrskurður kemur, þá „dásamar
erkibiskup mjök þennan hlut, því at hann veit vel eiginni raun,
at þessi er í curia nýr háttr bréfanna, at þau leysist út, svá at
hvárki komi þeim í nánd fé né flutningr" (Bps. II. 125). Þannig
segist Arngrími ábóta frá, og viðhorf erkibiskups til Guðmundar
biskups breytist frá þessari stundu. Hann hlustar með athygli á
frásögn þessa hrjáða guðsmanns um það, í hve nánum tengslum
frændsemi og vináttu Magnús Skálholtsbiskup er við ofsækjendur
og mótstöðumenn Guðmundar biskups. Og allt þetta gat bróðir