Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 66
62
Björn Þórðarson
ANDVARI
kórsbræðrum dómkirkju biskupsdæmisins, og þar sem engar
slíkar samkundur væru við íslenzku biskupsstólana, lægi kjör
þeirra undir kórsbræður erkistólsins í Niðarósi. Ekki hefur Magnús
biskup Gizurarson getað séð þetta fyrir, því að hann sjálfur var
vígður athugasemdalaust af Guttormi erkibiskupi að afstöðnu
kirkjuþinginu í Lateran, er gerði samþykktina um biskupskjör.
Efalaust hefur Bjöm biskupsefni farið til Rómar í þetta sinn
til þess fyrst og fremst að fá úrskurð páfa um óhæfi Guðmundar
biskups, en í öðru lagi til að skýra fyrir curiunni sérstöðu og
venju íslendinga um biskupakjör.
Vitanlega var urn tyllirök ein og undanbrögð af hálfu erki-
biskups að ræða. Sigurður erkibiskup og Hákon konungur voru
vinir, og full samvinna var þegar komin á milli þeirra í Islands-
málum. Sturla Sighvatsson hafði rekið erindi konungs með dugn-
aði á íslandi og nú var tækifæri samkvæmt guðs lögum til að
svipta íslenzku höfðingjana valdi yfir kirkjunni þar og gera
hana að verkfæri í höndum erkibiskups og konungs til eflingar
norskum yfirráðum í landinu.
Árið 1237 önduðust báðir íslenzku biskuparnir, Guðmundur
16. marz og Magnús 14. ágúst og var þarmeð biskupslaust í
landinu. Sama sumar flýði Snorri Sturluson úr landi undan
Sturlu, sem einnig rak frændur sína, Þorleif í Görðum og Ólaf
hvítaskáld, utan. Þessir menn voru í Noregi næsta vetur, svo og
Þórður kakali, sem verið hefur sendimaður Sturlu bróður síns.
Hvergi er þess getið, að konungur og erkibiskup hafi ráðgazt við
íslenzku gestina, er áður voru nefndir, um skipun biskupsstól-
anna, og hér verða engar getur leiddar að því. Snemma árs 1238
andaðist Björn biskupsefni á leið frá Róm, og nú telja norsku
valdhafarnir tímabært að hrinda áformi sínu í framkvæmd um
skipun norskra manna á biskupsstólana. Var ábóti, að nafni
Sigvarður Þéttmarsson, vígður biskup til Skálholts, en bróðir
Bótólfur til Hóla. Ekki voru þessir menn sendir hingað á sama
ári; í stað þeirra kom norskur munkur, Hildibjörn að nafni, með
bréf erkibiskups. Ekki greinir hvað á bréfum þessum stóð, en