Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 74
70
Þórir Þórðarson
ANDVARI
komst Palestína á vald Ptolemeum Egiptalands. Á annarri öld
fyrir Krist sigraði Sýrlandskonungur, Antiochus III, her Egipta
og náði Palestínu undir hið Seleukidiska ríki Sýrlands. Antiochus
IV Epifanes Sýrlandskonungur, sem ríkti 175—164 f. Kr.,
reyndist Gyðingum grimmur konungur. Elann réðst inn í
Palestínu og framdi hryðjuverk mikil í hinni helgu borg. Hann
saurgaði hið heilaga musteri og byggði Seifi að lokum altari í
sjálfu musterinu í des. 168 f. Kr. Þessum aðförum Antiochusar
Epifanesar lýsir Brandur ábóti Jónsson á þennan veg í Gyðinga
sögu sinni:
„Hann sendir nú einn höfðingja til Gyðinga lands með mikl-
um her, fer hann nú í Jerúsalem og beiðist með friðmælum í
borgina. Þeir trúðu griðum hans. En þegar hann kernur inn í
borgina með sína sveit, rýfur hann grið sín, og drepur fólkið,
en rænir fénu, og brýtur víða borgina og brennir, hann tekur
konur, börn og búsmala, en gerir nýjan vegg um kastalann Davíðs,
og skipar þar í sínum mönnum með nógri vist og var sú seta
Gyðingum rnjög háskasamleg, og mest sakir musterisins er nærri
stóð kastalanum. Þeir drápu menn í musterinu sjálfu, og um-
kringis hjá, og saurguðu svá allan staðinn, í saklaussa manna
blóði. En allir flýðu brott þeir er komast máttu, og var nú nær eydd
borgin öll nema kastalinn af illmenni. Helgan staðarins snörist
í saurgan, særnd í svívirðing, hátíðir hans í hörmung, skraut hans
í skömm, sönghljóð hans í sút og grát og svá sem hann var
áður öllunr stöðum æðri, þeim mun öllum var hann vesallegri
gjörr en hverr annara".
Þessi árás á trú Gyðinga vakti uppreisn Makkabea. 165 f. Kr.
náði Júdas Makkabeus Jerúsalem á sitt vald og hreinsaði musterið.
Til minningar um þann atburð halda Gyðingar enn í dag hátíð-
lega hreinsunarhátið musterisins, Hanukkah. Eftirmaður Júdasar
Makkabeusar, Jónatan, varð bæði æðsti prestur og stjómandi
þjóðarinnar í senn. Gyðingar náðu fullu frelsi á dögum eftir-
manns Jónatans, Símonar Makkabeusar. Árið 141 var Símon