Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 79
ANDVARI
Handritin frá Qumran og saga Essena
75
konar biskup, sem hafa átti eftirlit með því, að allt færi fram
með settum hætti, og hafa átti á hendi allt fjárhald.
Reglan hafði sína eigin löggjafarsamkundu og sína eigin dóm-
stóla. Margvíslegar upplýsingar þar að lútandi er að finna í
riturn reglunnar. Hverjum og einum bar að hlýða yfirmanni
sínum og þeim, er yfir hann var settur og lengra kominn áleiðis
að fullkomnun lífernisins. Fyrir ýmis afbrot var mönnum refsað.
Fór þyngd hegningarinnar eftir eðli afbrotsins. Mjög var því
beitt að draga úr matarskammtinum og setja menn á svelti, allt
frá 10 dögum upp í tvö ár, og er vafalaust, að sú refsing hefir
dregið rnarga til dauða, því að eigi máttu þeir snerta annan mat
en þann, sem á borð var borinn í klaustrinu, því að hann einn
var hreinn en öll önnur fæða óhrein, og óhreinnar fæðu rnátti
enginn sá neyta, er tekið hafði vígslu.
Brottrekstra um aldur og ævi getur einnig, og má nærri geta,
hvílík afdrif þeir menn hafa hlotið, sem hafði verið innprentuð
helgi og heilagleiki alls þess, sem Essenareglan hafði um hönd,
og óhreinleiki og saurgun alls annars og þar með allrar fæðu,
sem þeir voru þaðan í frá dæmdir til þess að neyta.
Föst ákvæði giltu um inntöku meðlima, og eru þau ekki síður
ströng en þau, sem um brottrekstur fjalla og hegningu. Þegar
einhver æskir inngöngu í flokkinn, er hann fyrst tekinn til spurn-
inga eða prófs og nær þá inngöngu, ef vel gengur, í hið fyrsta
stig. Ef allt er með felldu, er hann látinn ganga upp í annað
stig og látinn kynna sér um tíma þá lífernisháttu, sem reglan
lagði stund á. Að loknu þessu stigi má hann taka þátt í nokkr-
um hluta af sameiginlegum iðkunum reglunnar. Honurn er leyft
að ganga til laugar með bræðrum og fá hlutdeild í hinu helga
hreinsunarbaði þeirra. En ennþá er honurn ekki leyft að snæða
með þeim, heldur verður hann að matast sérlega. Þegar þessu
stigi er lokið, er gengið til atkvæðagreiðslu um fullkomnun hans
og framför í heilögu lífemi. Ef niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
er honum í vil, er hann tekinn í regluna sem fullgildur með-
limur og fær nú að neyta hinnar helgu máltíðar. Nú er haldin