Andvari - 01.01.1955, Qupperneq 85
andvabi
Lesmál kringum Kantaraborg
81
Njálu. En orðið hæfir Gissurarsonum, Halli og ísleifi. Var Hall-
ur rúmlega tvítugur, er hann lét lífið á Flugumýri. Eitthvað yngri
mun ísleifur hafa verið.
I Njálu er aldur bræðranna þriggja borinn saman með þeim
hætti, að einn er talinn yngstur, en enginn greinarmunur gerður
á aldri eldri bræðranna. Eins er farið að í Sturlungu, þegar sagt
er frá miseldri Gissurarsona. Því næst er í Sturlungu skýrt frá
útliti þeirra með einu lýsingarorði og kallaðir „skörulegir menn“.
Sama máli gegnir um Brjánssonu í Njálu. Þeir eru sagðir „manna
vasklegastir“. Enginn þeirra telst þar til barna hinnar lráskildu
drottningar Brjáns konungs. Og er það rangt. Dungaður var son-
ur hennar. Á hinn bóginn var Ingibjörg Snorradóttir, sem Gissur
hafði skilið við, ekki móðir bræðranna, sem þátt tóku í vöminni
a Flugumýri. Þannig virðist þetta allt vera á sömu bókina lært
hjá Njáluhöfundi, þá er hann kynnir Brjánssonu fyrir lesendum.
IV.
Yngsti sonur Brjáns konungs lét hönd sína svo af tók, er
ráðizt var á skjaldborg. Sama var hlutskipti yngsta sonar Gissurar.
Kallast Ketilbjörn „sveinninn“, er hann missti höndina. Eins er
að orði kveðið um Taðk. 1 írskum heimildum er skjaldborgar
umhverfis Brján konung að engu getið, enda var það norrænn en
ekki írskur varnarmáti, að skipa skjaldborgir í omstum. „Var
skotið um hann skjaldborg", segir í Njálu. Á Flugumýri „bað
Gissur menn taka skjölduna og skjóta skjaldborg“. Má nú fara
nærri um það, hvert Njáluhöfundur hafi sótt hugmyndina að
skjaldborginni og handarafhöggi sveinsins Taðks.
Allir synir Gissurar fórust í Flugumýrarbrennu. Samt finnst
Njáluhöfundi það nægilegt að tveir Brjánssynir týni lífinu í
Clontarfbardaga. Þessu afbrigði veldur kraftaverkið, sem fylgdi,
er „blóðið konungsins kom á handarstúf sveininum“. Auðvitað
kom ekki til mála að láta Taðk deyja rétt á eftir handarafhögginu,
þar sem blóð konungsins hafði með undursamlegum hætti grætt
sar hans. Frá hliðstæðu kraftaverki greinir Snorri Sturluson, er