Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 101
ANDVARI
Lesmál kringum Kantaraborg
97
við það, ef Sturla vill fylgja mér, og skiljast eigi fyrr við þig en
þessi mál Ijúkast með einhverju móti' (II, s. 175).
Orðræða þessi á að hafa átt sér stað að Rauðsgili í Hálsasveit
13. júlí 1255, er stofnað var til bandalagsins milli Þorgils og Þor-
varðs í því augnamiði að ná völdum yfir Noi'ðlendingafjórðungi
og knýja fram sætt eða koma við hefndum í vígsmáli Odds, bróður
Þorvarðs. En er rætt var um upptöku vígsmáls Höskulds Hvíta-
nesgoða að Holtsvaði, segir Ketill úr Mörk: „ÞaÖ vildi eg að sættir
yrðu með oss. En þó hefi eg svarið eiða, að skiljast eigi við þessi
rnál fyrr en yfir lýkur með nokkuru móti og leggja líf á“ (K. 117).
Þorgils og Ketill lýsa því yfir, að þeir muni ekki skiljast við
vxgsmálið fyrr en því Ijúki með einhverju móti. En Þorvarður
°g Ketill leggja líf sitt að veði. Hvað eftir annað eru söguper-
sónur Njálu látnar gera þetta: „Munu þeir leggja sitt líf við þitt
^f" (K. 75). „Og skal eg líf á leggja“ (K. 132). „Hver þeirra skyldi
leggja sitt líf við annars líf“ (K. 135). „Berjast með yður þó að
þess þurfi við og leggja líf mitt við yðvart líf“ (K. 140).
XVIII.
Orðtakið: ,,að leggja líf sitt við“ hefur brennzt inn í huga
horvarðs Þórarinssonar, er hann las frásögnina af Rauðsgilsfund-
'num, og valdið langvarandi og sárum sviða. Orsök þess er auðsæ.
Orðtakið stóð í Sturlungugreininni í hinum allra nánustu hugs-
anatengslum við hið óhugnanlega lesmál kringum Kantaraborg
eða Cantia, eins og hún nefnist í Sturlungu.
Söguritarinn segir að ÞorvarÖur hafi lagt líf sitt að veði fyrir
ævilangri tryggð sinni við Þorgils og stuðningi við hans nauð-
synjamál. En síöar lýsir Þorvarður svo því yfir í „gróf einni“
^já Skjaldarvík, að hann ætli að drepa Þorgils. Og hann lætur
Ser ekki nægja að svipta tryggðavin sinn lífinu, heldur á hann
einnig að hafa níðzt á honum örendum með eigin hendi, líkt
°g Ranúlfur frá Broch á andvana líkama erkibiskupsins í Kant-
araborg.