Andvari - 01.01.1953, Side 8
4
Sigurjón Jónsson
ANDVARI
ætt, en kom hingað til lands 17 ára gamall; samdi hann sig
brátt aS hérlendum háttum og tungu, en hana talaði hann og
ritaði sem innborinn væri, að kunnugra sögn. Hann andaðist
í Reykjavík þriðja í jólum 1918, 68 ára að aldri. — Móðir dr.
Gunnlaugs var fyrri kona föður hans, Kristín, dóttir Eggerts
sýslumanns Briem, ein 12 systkina, er til fullorðinsára komust
og flest urðu þjóðkunn. Hún andaÖist viku eftir fæðingu Gunn-
laugs og var hann yngstur sinna alsystkina, en þau voru Eggert
bankastjóri og hæstaréttarmálaflutningsmaður, er andaðist í októ-
ber 1950, Ingibjörg, ekkja Jóns Þorlákssonar ráðherra og borgar-
stjóra, og María, kona Sigurðar Thoroddsens yfirkennara. Hann
ólst upp í föÖurhúsum til haustsins 1894, en þá fór hann til
HafnarfjarÖar til Gunnlaugs móðurbróður síns, er var kaupmað-
ur þar og kvæntur föðursystur hans. Stundaði hann þar undir-
búningsnám undir 1. bekk Lærða skólans hjá Jóhannesi Sigfús-
syni, er þá var kennari við Flensborgarskólann, og sótti einnig
suma tíma í þeim skóla, tók inntökupróf í 1. bekk Lærða skól-
ans í júnílok 1895. Næsta vetur las hann utanskóla í Hafnar-
firði, en tók próf með fyrstu bekkingum upp í 2. bekk vorið
1896. Tvö næstu árin sat hann í skólanum, las utanskóla á ný
veturinn 1899—1900, sat í skólanum 1900—1901 og tók stúdents-
próf þá um voriÖ með hárri 1. einkunn. Samsumars sigldi hann
til Kaupmannahafnar og tók að lesa læknisfræði við háskólann þar.
Tafðist hann nokkuð við námið vegna veikinda, en embættisprófi
lauk hann í janúar 1910, sömuleiðis með 1. einkunn. Var hann
síðan áfram við framhaldsnám erlendis hátt á fjórða ár. Kynnti
hann sér meðal annars bamalækningar, var um missirisskeið
námskandídat í bamadeild Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn. En
einkanlega lagði hann kapp á Ijóslækninganám og geislalækn-
inga. Stundaði hann geislalækninganámið í röntgendeildum
sjúkrahúsa í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Berlín og í Radium-
hemmet í Stokkhólmi. Heim kom hann haustiÖ 1913 og gerÖist
starfandi læknir í Reykjavík og fékkst einkum við bamalækn-
ingar, en jafnframt vann hann að undirbúningi röntgenstofn-