Andvari - 01.01.1953, Side 17
ANDVARI
Gunnlaugur Claessen
13
ár. Um áhugamál hans þar og málflutning segir svo í grein-
inni: „Hann . . . átti mörg áhugamál. Gengu þau flest í þá átt
að gera líf borgaranna bjartara og heilsusamlegra . . . Hann var
manna hæglátastur, en hélt fast á sínu máli, þegar þess þurfti
mcð, og flutti það með skörungsskap og rökvísi. Málflutningur
hans var jafnan hófsamlegur og mótaður af þeirri háttprýði, sem
einkenndi hann í öllu dagfari, svo að af bar. . . . Bæjarfélagið
missti mikils í því, að hann gerðist ekki pólitískur bardagamað-
ur til þess að korna í framkvæmd hugmyndum sínum í ýmsum
greinum bæjarmálanna. Hugkvæmni hans var mikil í þeim efn-
um og tillögur hans jafnan mótaðar af raunsæi hans og miklum
vitsmunum". — Vita allir þeir, sem nokkur veruleg kynni höfðu
af dr. Gunnlaugi, að þetta er ekkert oflof, enda bera ritstörf hans
því órækt vitni.
Rauði krossinn. Dr. Gunnlaugur Claessen var einn af
fremstu hvatamönnum að stofnun Rauða kross íslands og einn
af aðalstofnendum hans 1924, var þar alla tíð í stjórn og for-
maður lengur en nokkur annar hefur enn verið. Hann var einn
af þrem,1) sem ræður héldu á stofnfundinum 10. des. 1924,
°g drap þegar á nokkur atriði heilbrigðismála, sem hann taldi,
að Rauði krossinn ætti að láta til sín taka. Segir dr. Sigurð-
Ur Sigurðsson berklayfirlæknir, er lengi var samstarfsmaður
^r- Gunnlaugs í stjóm Rauða krossins, í minningargrein um
hann í „Heilbrigt líf“ (VIII. árg., bls. 127), að óhætt megi full-
yr'ða, „að atorka hans og áhugi á málefnum og hugsjónum Rauða
krossins hafi reynzt happadrýgst í því að leggja þann grund-
völl, er félag þetta stendur nú á, enda veitti hann því sjálfur
forstöðu á hinum örðugustu tímum. Barðist hann jafnan fyrir
því, að Rauði krossinn yrði öflugur þáttur í heilsuvemdarstarf-
semi landsins". Mjög í sömu átt fara ummæli annars samstarfs-
1) Hinir tveir voru Sveinn Björnsson, siðar fyrsti forseti íslands, og Guð-
mundur Thoroddsen prófessor.