Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1953, Side 27

Andvari - 01.01.1953, Side 27
ANDVARI 23 Á mótum gamals tíma og nýs er það hér látið tákna lok hinnar mestu kyrrstöðu. 1 morrandi lygnu áranna er fátt, sem hrærir hið sljóstreyma yfirborð. Þannig mjakast elfur tímans fram í þjóðfélagi, sem veit varla af sjálfu sér, er stjórnað án nokkurrar hlutdeildar þegnanna, sem líta af gömlum vana á ráðstafanir stjórnarvalda líkt og viðbrigði veður- fars og árstíða, sem taka verður með þolgæði yfirleitt og þakk- læti þá sjaldan slíkt ræðst betur en vænta mátti. Sarnt er þetta þjóðfélag iifandi og starfandi á sinn hátt, en svo gersamlega ólíkt því, sem gerist urn þjóðfélag á vorum dögum, að naumast verður til þess jafnað. Það býr yfir öllum hinum sömu kröftum, en það þekkir þá ekki, veit ekki að þeir séu til. Það á a. m. k. marga hina sömu úrkosti, en órar ekki fyrir þeim. Bóndinn og sjómað- urinn, máttarstólpar þessa þjóðfélags, heyja sína römmu og hetju- legu baráttu ár frá ári við kaldræn, hlutlaus náttúruöflin. Þessi barátta er alltaf háð á einn veg, sífelld endurtekning, og löngum ærnum hrakföllum hundin. Hjá henni verður ekki sneitt, því hún er háð um lífið sjálft. 1 þessu landi bænda og sjómanna er allt undir því komið, að sjór verði sóttur og kvikfénu borgið vetrar- langt. Verði hér misbrestur á, er engu fyrir að týna nema lífinu. í góðu árunum, þegar allt leikur í lyndi, er lífið vandalaust, ein- lalt og ríkt af unaðslegum tilvikum, mjúklátri glettni og háleitri, heiðrænni, dýrð, eins og landið sjálft, sem er alltaf fagurt, þegar vel veiðist og daggir og ljós himins tengjast frjósemi moldar í gróðursæld. En ef illa árar er sá einn kostur að leggja sig enn naeir fram, róa því oftar og sækja því lengra sem aflinn er tregari, °g rækja heyskapinn og stunda vetrarbeitina með því meira at- fylgi sem sprettan er rýrari og heyföngin minni, en ]rví næst herða sultarólina fastar. Þetta var hin forna, þrautprófaða hern- aðarlist í baráttu þjóðarinnar fyrir tilvist sinni, og hún er í fullu gildi á því herrans ári 1835, og að vísu drjúgum lengur, en ekki algild. Ur því kemur fleira til greina. Meginstoðir atvinnulífs á vorum dögum eru fjármagn og samtök. í sögu atvinnuveganna varðar mestu um samtökin, því þangað má rekja upphaf hinna stærstu átaka og afreka. Saga

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.