Andvari - 01.01.1953, Síða 55
ANDVARI
Milli Beruvíkurhrauns og Ennis
51
Ingjaldshóli, Goti að Gotalæk, Hólmkell að Fossi við Hólm-
kilu.6) Ennfremur var Saxi á Saxhóli, sonur Ingjalds, er rek-
inn var í burtu af Grímkeli Hlfssyni, bróður Gunnbjamar, er
Gunnbjamarsker eru við kennd. Grímkell nam land frá Beru-
víkurhrauni til Neshrauns og út um Ondverðames og tók sér
bólstað að Hrauni hjá Saxhóli, sem nú nefnist Forni-Saxhóll.7)
Mun það vera réttasti skilningur á orðalagi Landnámu, enda
stóð bærinn alveg við hraunjaðarinn.
Yngri heimildir greina öðruvísi frá. I Bárðar sögu Snæfells-
áss segir, að Ingjaldur Alfarinsson hafi fundið sér land að Ingjalds-
hóli að ráði Bárðar Dumbssonar, en honum hafði hann orðið
samferða til Islands. Ennfremur segir í sögunni, að Hólmkell
hafi verið bróðir Ingjalds, faðir Ketilríðar, er Víglundur orti flest-
ar vísur um.8)
I Víglundarsögu segir svo, að Hólmkell hafi búið að Fossi
við Hólmkilu. Hann var Álfarinsson, Válasonar, bróðir Ingjalds
að Ingjaldshóli og Höskulds að Höskuldsstöðum og Gota að
Gotalæk. Segir svo, að Þorgrímur prúði Eiríksson hafi keypt
land að Ingjaldshóli, en Ingjaldur færi kaupferðum í annan
stað.°) Rekst heimild þessi á við aðra betri um Þránd stíganda
Ingjaldsson, er síðar verður getið.
Bárðar saga Snæfellsáss er talin rituð á fyrra hluta 14. aldar,
en Víglundarsaga er líklega rituð á síðari híuta 14. aldar.10) Þó
er það eftirtektarvert, að Bárðar saga skuli vitna til vísna Víg-
lundar.
Hvernig sem litið er á heimildir þessar, þá virðist þó öruggt,
að þeir hræðumir, Álfarinssynir, hafi búið á ofangreindum stöð-
uni. Em þeir þekktir enn í dag undir sömu nöfnum eða því sem
nasst, nema Höskuldsár, þar sem nú er verstöðin og kauptúnið
Sandur.
Um kauptúnið á Sandi rennur enn á, er nefnist Höskuldsá,
°g tengir heiti það Sandinn við landnámstímann.
Snemma hefur athafnalíf hafizt og dafnað á þessum slóðum.
I Eyrbyggju segir svo frá, að Þóroddur skattkaupandi að