Andvari - 01.01.1953, Side 94
90
Ólafur Sigurðsson
ANDVAHI
vel hirtur, þurrkaður fljótt og hristur vel og geymdur laus, þar
til hann er hreinsaður á hjall- og skemmulofti, má búast við
að fá 1 kg. úr um 50 hreiðrum. En sé hirðingu mjög ábótavant,
geta farið 65—70 hreiður í ldlógrammið.
Óvinir æðarfuglsins. Eins og áður er að vikið, er svartbakurinn
skæðasti spellvirki æðarvarpanna, vegna þess að hann étur egg og
unga æðarfuglsins í stórum stíl. í því sambandi vil ég geta um
nokkur atriði úr athugunum dr. Finns Guðmundssonar, er hann
gerði á varpinu á Bæ í Hrútafirði vorið 1940. Þar segir svo:
„Svartbakurinn er vafalaust sá óvinur æðarfuglsins úr dýra-
ríkinu, sem mest tjón stafar af. Vanhöld þau, sem hann veldur
á eggjum og ungurn æðarfuglsins, eru geysilega mikil og sjálf-
sagt meiri en flesta grunar. . . . Við athuganir mínar á lífsháttum
æðarfuglsins í varpinu á Bæ í Hrútafirði hafði ég gott tækifæri
til að fylgjast með eggja- og ungatöku svartbaksins, einkum eggja-
tökunni . . .
Til marks um það, hversu mikil brögð eru að eggjaráni svart-
baksins, skal hér skýrt frá niðurstöðu af athugunum á 4 hreiðrum,
sem ég merkti í byrjun varptímans og gaf eftir það nánar gætur,
þar til kollurnar voru búnar að leiða út. Af þessum 45 hreiðrum
urðu 25 eða 56% fyrir ásóknum svartbaksins. Af 233 eggjum,
sem orpið var í þessi 45 hreiður, rændi svartbakurinn 73, eða
31% af eggjunum. Það skal tekið fram, að aðsókn svartbaks í
varpið, þar sem athuganir þess voru gerðar, var ekki mjög mikil
í samanburði við það, sem víða er annars staðar.
Það er ekki úr vegi að athuga, hve mikið af æðareggjum fer
í svartbakinn að meðaltali á ári hér á landi, samkvæmt niður-
stöðum þeim, sem ég hefi komizt að.
Ef gert er ráð fyrir, að hver kolla gefi af sér 17 gr. af hreins-
uðum dún á hverju ári, en það mun láta mjög nærri sanni, þá
ættu að vera 223 875 æðarhreiður á öllu landinu, því meðal
dúnmagn af hreinsuðum dún hefur verið 3582 kg. á ári á tíma-
bilinu frá 1898 til 1938. Ef við gerum ráð fyrir 4 eggjum í
hreiðri að meðaltali, en það mun tízt of hátt reiknað, þá ætti