Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 48

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 48
44 Jónas Jónsson ANDVARI VIII. Síðan liðu tíu ár með pólitiskum umbrotum og óskörulegri stjórnmálaforustu. Danir sátu við sinn keip og voru alls ófúsir að játa, að ísland ætti fyrr eða síðar að geta horfið úr veldi Danakonungs. Mitt í málamiðlunartilraunum þessa tímabils hafði fánamálið verið dregið út af vettvangi baráttuhugsjón- anna. Þegar æskan í landinu sameinaðist um bláhvíta fánann eftir 1907 og söng „Rís þú, unga íslands merki“, sem pólitísk vakningarljóð, þá var mjög verulegur hluti þjóðarinnar á allt öðru máli. Þeir menn litu á bláhvíta fánann sem uppreistar- inerki. Þeir sættu sig vel við Dannebrog. Einn af kunnustu stjórnmálamönnum þessara ára sagði, til að tákna andstöðu sina við Hvítbláin, að hann vildi ekki lifa á íslandi, ef danski 'fáninn hætti að vera tákn þjóðarinnar. Fjöldi annarra áhrifa- mikilla inanna var á sömu skoðun. Hins vegar bar æskan fram kröfuna um íslenzkan þjóðfána. Þá gerðu andstæðingar blá- hvíta fánans það herbragð að ganga inn a, að þjóðin fengi sér- stakan fána, ef hann væri með miklum sýnilegum skyldleika við Dannebrog. Alþingi var að heita mátti tvískipt um málið og tók það óhapparáð að fela Danakonungi að ákveða fána- gerðina. Konungur ákvað að setja rauðan kross inn í „upp- reistarfánann", og þannig var fáninn löggiltur, fyrst sem stað- arfáni og litlu síðar, 1918, sem þjóðfáni. En þvi fylgdi sá ann- marki, að nálega engum þótti vænt um hinn nýja fána. Sá hluti þjóðarinnar, sem hafði barizt fyrir hreinum, íslenzkum þjóðfóna, var særður yfir þvi, að Danakonungur skyldi fá að setja sitt merki á fánann. Og hinir, sem höfðu unað vel fána Dana, voru þýðingarlitlir stuðningsmenn fyrir islenzkan þjóð- fána. Fánasöngur Einars Benediktssonar átti síður en svo við þrílita fánann. Hafði skáldið sjálft mikla vanþóknun á þeim fána, sem Danakonungur ánafnaði íslendingum. Megintjónið \ið málainiðlun þessa var, að hin heita sóknaralda fánamáls- ins var hrotin á skeri danskrar ihlutunar. Þjóðin hafði fengið fána, sem mátti líta á eins og nytjahlut í þjóðarbúinu, en eng- um þótli þó vænt um og ekkert skáld hefur ort um hrífandi Ijóð. Hirðuleysið um hinn nýja fána kom fram í meðferð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.