Andvari - 01.01.1945, Side 92
88
Þorkell Jóhannesson
ANDVARt
en flytja það þangað lil framfærslu. Þessi rölcsemd var hár-
rétt, enda þurfti ekki fleiri. Nefndin ákvað þegar að skýra
Rentukammerinu frá því, að hún gæti ekki ráðið til þess, að
hugmynd þessi yrði framkvæmd, með því að ómagaframfæri
væri miklu ódýrara á Islandi en vtra. En tala heilbrigðra hús-
gangsmanna myndi skjótt iælcka svo við hæfilegt aðhald vfir-
valda, að vart yrði til þyngsla talið. Væri því ástæðulaust að
færa þá utan. Þetta tilkynnti svo nefndin Rentukammerinu
með bréfi 23. febrúar og það með, að hún myndi siðar gera
tillögur um það, hversu þessari hjálp og eftiriit yrði hagað.
Samkvæmt fundarskýrslunni frá 14. febr. hugsaði nefndin
sér, að þessu yrði hagað þannig, að sérhyer hreppur skyldi
annast þrotbjarga fólk, er þangað hefði hrökklazt, en fá skyldi
hrepparnir kostnað sinn greiddan af samskotafé. Eigi máttu
þó styrkþegar sjálfir vita annað en að þetta væri eiginlegur
sveitarstyrkur, eða lán, er stiftamtmaður eða amtmaður miðl-
aði af meðaumkun, í von um samþykki stjórnarinnar síðar.
Má kalla, að hér legðist nefndin alldjúpt. Hér var að visu um
að ræða ráðstöfun á fé, er aflað var með frjálsum samskotum,
en því skyldi nú úthlutað sem hreinuin og beinum sveitar-
styrk — að sjálfsögðu í þeim vændum, að færri girntust þá
hjálpina! Rörn vildi vildi nefndin selja í fóstur að norskri
venju, þannig að þau væri skuldbundin að vinna lijá fóstur-
foreldrum sínum unz þau væri 18 ára, en reyndar ekki lengur.
—- Hugleiðingum sínum um þetta efni lýkur nefndin á þá leið,
að lcæmi þjóðinni nýtt áfall, svo að tala þrotbjarga manna
ykist stóruin, skyldi kammerherra og stiftamtmanni Levetzow
heimilt að senda eitthvað af slíku fólki utan, þó ekki nema
brýn nauðsyn krefði. Þannig laulc þessu máli.1)
Af gögnum þeim, sem liér hafa rakin verið, kemur í Ijós, að
eini maðurinn, sem lagði hugmynd þessari lið, var Levetzow
kammerherra. Mun ekki ofdjarft að eigna honum upptök
málsins, og verður það enn berara ef betur er að gáð. Eng-
1) Skjöl landsnefndarinnar 1785 í Þskjs. Sjá enn fremur Pontoppidan:
Magazin for alineennyttige bidrag I., Iils. 188—89, 205—08, II., bls. 324, 327,
337, 349—50.