Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1947, Page 58

Andvari - 01.01.1947, Page 58
54 Barði Guðmundsson ANDVARI er Þorgils skarði var veginn uin veturinn, var drepinn Teitur Einarsson lögsögumaður austur í fjörðum. Þá stóðu uppi II skip að Gásum í Eyjafirði, Hólmdælan, er Sindri stýrði, og Gróbússan, er Eyjólfur auðgi stýrði. Þá var og skip í Skaga- firði í Kolbeinsárósi, er Bárður réð fyrir Hallröðarson.“ — „Þá um sumarið réðust til skips með Sindra margir islenzkir menn, bæði brennumenn og Fagranesmenn.“ — „Þau skip létu út bæði senn frá Gásum. Týndist Hólmdælan suður fyrir Mýrum. Komust af L manna, en aðrir L manna týndust. Gróbússan týndist og hvert mannsbarn, er á var. Segja flestir, að þeir liafi komið við Skotland og þar verið leiddir upp allir og drepnir, hver á fætur öðrum.“ Gróbússan, skip Eyjólfs auðga, stóð uppi að Gásum vet- urinn áður en feigðarförin var farin, sem endaði við Skot- landsströnd, að því er flestir sögðu. Skip Eyjólfs nefs, sem frá er greint í Njálu, stóð uppi í Hornafirði veturinn áður en brennumenn tóku sér far með því. Það týndist við Orkn- eyjar. Skipverjar náðu landi nauðulega, leituðu sér fylgsnis og reyttu á sig mosa, því þeir bjuggust þar við afarkostum. þótt úr rættist. Athyglisverðasla atriðið í jæssu sambandi er það, að brennumenn koma við sögu í báðuin tilfellum. Brennu- menn úr Flugumýrarbrennu leita sér skipsrúms að Gásum, þar sem skip Eyjólfs auðga stendur uppi, og leggja af stað samdægurs honuin. Brennumenn úr Njálsbrennu fara utan á skipi því, er Brennu-Flosi keypti af Eyjólfi nefi. Engum blöð- um er um það að fletta, að Njáluhöfundur hefur haft brennu- menn frá Flugumýri í huga, þá er hann greindi frá afdrifum brennumanna frá Bergþórsbvoli. Veturinn eftir Flugumýrar- brennu heppnaðist Gissuri Þorvaldssyni að fella átta af brennu- mönnum, og á næsta sumri, er Oddur Þórarinsson hafði lekið við forustunni af Gissuri í baráttunni gegn þeim, felldi hann fimm i Grímsey. Rétt áður en greint er í Njálu frá utanför Flosa og manna hans á skipi Eyjólfs nefs, er Kári látinn segja við Þorgeir skorargeir: „Drepa ætla ég Gunnar Lambason og Kol Þorsteinsson, ef færi gefur á. Höfum við þá drepið fimm- tán menn með þeim fimm, er við drápuin báðir saman.“ Hina

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.