Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1947, Page 66

Andvari - 01.01.1947, Page 66
62 Barði Guðvnundsson ANDVARI Njáluhöfundi svo hugstæðir, að hann gaf sögupersónum sín- um nöfn eftir þeiin. Og ekki má nú norski erindrekinn ívar Arnljótarson gleymast, þótt Njáluhöfundur noti aðeins móð- urnafn hans til nafngiftar í sögu sinni. Allir þessir menn eru nefndir í Sturiungu, þar sem greint er frá málefnum, sem mjög varða Þorvarð Þórarinsson. Þó eru frásagnir af stjTÍ- mönnunum þar harla yfirgripslitlar. Með Kolbeini svarta og Skeggja hvíta fórust föðurbræður Solveigar, konu Þorvarðs, og var annar þeirra tengdafaðir Odds, bróður hans. Jafn- skjótt og hinni stuttu frásögn af skipstapanum lýkur, er grein! frá deilum Odds og Þorvarðs við Sæmund Ormsson, sem áttu sér stað um sama leyti. Enda eru báðar frásagnir teknar eftir riti, sem fjallað hefur um Valþjófsstaðabræður og nán- ustu vandamenn þeirra. Um Bárð Hallröðarson og' Eyjólf auðga er það að segja, að dvalar þeirra á fslandi er getið í sömu andrá sem greint er frá lífláti Þorgils skarða og „heimild“ þeirri til eigna og yfir- ráða í Eyjafirði, sem „Þorvarður — þóttist hafa af Steinvöru Sighvatsdóttur, mágkonu sinni“. f Þorgils sögu er einnig sagt frá kröfu Steinvarar til héraðs í Eyjafirði og eigna þar. Og i sömu greininni getur útkomu ívars Arnljótarsonar með konungsbréf, og „var það þar á, að hann liefði skipað Þor- gilsi Eyjafjörð til fyrirvistar". Söguritarinn blandar að vísu saman nöfnum þeirra ívars Arnljótarsonar og ívars Engla- sonar, sem einmitt kom út 1255, en nafni hans fyrst tveim árum eftir dráp Þorgils skarða. Þetta skiptir þó litlu máli hér, því sú staðreynd liggur jafnt fyrir, að ívars Arnljótar- sonar getur í sambandi við mikilvægan atburð í lífi Þorvarðs Þórarinssonar. Það er ekki heldur efa bundið, að Njáluhöf- undur hafi þekkt Þorgils sögu. Málfars- og orðalíkingar milli hennar og Njálu eru svo miklar, að ekki er einleikið. í Þor- gils sögu ga*tir þessa langmest, þar sem rætt er um Þorvarð, og í ræðum þeim, sem honum eru eignaðar. Má sérstaklega benda á ræður hans í Glæsibæ og Skjaldarvík og frásögnina af fundinum að Rauðsgili 1255. Getur ekki hjá því farið, að Njáluhöfundi hafi verið þessir heimildarstaðir mjög ríkir i

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.