Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 71
ANDVARI
Við Oddastað
67
Hjálmar við Eyjafjörð, Jónas Hallgrímsson í Eyjafirði, Stein-
grímur Thorsteinsson á Snæfellsnesi, Matthías Jochumsson
við Breiðafjörð, Benedikt Gröndal og Grímur Thomsen á Álfta-
nesi, Kristján Jónsson í Norður-Þingeyjarsýslu, Hannes Haf-
stein í Eyjafirði, Einar Benediktsson í Þingeyjarsýslu, Páll
ólafsson á Austurlandi, Stephan G. Stephansson i Skagafirði,
Þorsteinn Erlingsson og Guðmundur Guðmundsson i kljóts-
hlíð, Þorsteinn Gíslason á Austurlandi, Stefán frá Hvítadal
í Dölum, Davíð Stefánsson í Eyjafirði og Tómas Guðmunds-
son í Árnesþingi. Af þingeyskum skáldum, sem dvöldust
heima í átthögum sínum að kalla má alla ævi, má nefna Þor-
gils gjallanda, Guðmund Friðjónsson, Sigurð Jónsson, Indriða
Þorkelsson og Unni Benediktsdóttur. Ef litið er á skaldsagna-
höfunda, fæddust Jón Thoroddsen og Gestur Pálsson við
Breiðafjörð, Einar Kvaran í Húnaþingi, Þorgils gjallandi í
Mývatnssveit, Jón Trausti í Norður-Þingeyjarsýslu, Guð-
mundur Hagalín á Vestfjörðum, Halldór Laxness í Mosfells-
sveit og Kristmann Guðmundsson í Borgarfirði. Leikritaskáldin
fndriði Einarsson og Jóhann Sigurjónsson eru fæddir og
uppaldir í Skagafirði og Þingeyjarsýslu. Auk Jóhanns Sigur-
jónssonar liafa numið land erlendis Jónas Guðlaugsson frá
Breiðafirði, Guðmundur Kamban frá Vestfjörðum og Gunnar
óunnarsson úr Vopnafirði. Um málara, myndhöggvara og
húsameistara er hið sama að segja. Sigurður Guðmundsson
málari var Skagfirðingur. Einar Jónsson og Ásgrímur Jóns-
son Árnesingar, Kjarval og Guðjón Samúelsson Skaftfellingai,
’fón Stefánsson Skagfirðingur, Ríkarður Jónsson Austfirðingur
°g Gunnlaugur Blöndal Húnvetningur.
Þá hafa flestir leiðtogar þjóðarinnar í fræðimennsku og vís-
indum komið úr skauti byggðanna. Jón Sigurðsson, Guðbrand-
ni' Vigfússon, Þorvaldur Thoroddsen, Ólafur Lárusson, Trausti
Einarsson og Björn Guðfinnsson eru Vestfirðingar. Björn
Ólsen, Guðmundur Magnússon, Sigurður Nordal, Jón Eyþórs-
son og Jón Jóhannesson úr Húnaþingi. Sigurður Þórarinsson
er Vopnfirðingur. Stefán Stefánsson, Páll Briem, Gunnlaugur
ólaessen, Magnús Jónsson og Pálmi Hannesson Skagfirðingar.