Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1947, Side 78

Andvari - 01.01.1947, Side 78
74 Jónas Jónsson ANDVAni leg iðja, og er engin ástæða til, að þar sé metingur milli manna. Hins vegar er sókn æskunnar nú mjög eindregið frá fram- leiðslunni að Iaunamennsku, og má nærri geta, hve mjög flokk- unin í sauði og hafra ýtir undir sókn að embættismenntun. Hins vegar má öllum vera Ijóst, að ekkert mannfélag getur staðizt, ef allir borgarar eiga að vera búðarmenn, skrifarar, kennarar, lögmenn eða læknar. Mannlífið og mannfélagið getur ekki staðizt, nema til séu menn, sem yrkja jörðina, stunda fisltveiðar, siglingar og hvers lconar iðnað. Falli þessi störf niður, lirynur mannfélagið. Ef sá báttur kemst á, að við framleiðslustörf eigi ekki að vera aðrir menn en þeir, sem fallið hafa á prófi til að sinna andlegum fræðum, má búast við, að dagleg störf hinna útskúfuðu verði ekki á marga fiska. Skólalöggjöfin er hættuleg á marga vegi. Hún slítur börn og ungmenni frá heimilunum og gerir ráð fvrir fjölþættum upp- eldisverksmiðjum til að taka við vandanum af foreldrunum. Þegar börn og unglingar eru farin að vera bálft árið eða meir í fjarlægum heimavistarskólum frá heimilum sínum og vanda- mönnum, slitna ætternis- og átthagaböndin af sjálfu sér. Börnin afvenjast að taka þátt í daglegum störfum með for- eldrum sínum, nema þegar þau eru i leyfum að sumri til eða um hátíðar. Þegar skipulagið gerir auk þess greinilegan mun á þeim unglingi, sem stundar bóknám, og þeim, sem vinnur að framleiðslu, er enginn vafi á, að þessi skólalöggjöf eitrar þjóðlífið, ef ekki er fljótlega gripið í taumana. Á þingi 1939 var frumvarpið um héraðsskóla samþykkt með miklu fylgi og með ráðnum hug. Þar áttu allir nemendur að stunda jöfnum höndum bóknám, verknám og iþróttir. Alku' námsgreinar voru jafnvirðulegar. Að loknu skólanámi stóð nemendum frjálst að velja um margar leiðir, eftir því sem hver taldi sér bezt henta. En þetta heilbrigða jafnvægi vai rofið með löggjöf Brynjólfs Bjarnasonar. Nú er málum svo komið, að skólaskipulagið og veilclun aldarandans vinna sam- an að því að skapa óeðlilegan og þjóðhættulegan flótta Þa framleiðslustörfunum að svokallaðri léttivinnu hjá ríki og bæjarfélögum. Hitt er annað mál, að þessi löggjöf verður aldim

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.