Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1947, Page 97

Andvari - 01.01.1947, Page 97
ANDVARI Líffræði og læknisfræði 93 ingar- og sótthreinsunaraðferðir, sem teljast einnig til líf- fræðinnar, með því að þær varða eyðingu lífs. Auk þeirra greina líffræðinnar, sem þegar hefur verið drepið á, eru til fleiri svið liffræðirannsókna, sem nú eru að leggja mikilsverðan skerf bæði til lækningar sjúkdóma og varna gegn þeim. Hér skal rétt minnzt á fáeinar þeirra uppgötvana á þeim sviðum, sem gerðar voru árið 1942. Á því ári urðu miklar framfarir í andrúmsloftslíffræði, en hún hefur lengi setið á hakanum; fæst hún við rannsóknir á dreifingu blómafrjóa, sveppgróa og baktería í loftinu. Ný þekking hefur fengizt á smitefnum í loftinu og nýjar aðferðir fundizt til að eyða þeim með vökvum og útfjólubláum geisl- um. Þá hafa og þetta ár fundizt margar nýjar líffræðilegar aðferðir til að halda sýklum í skefjum. Þar á meðal má nefna, að nokkurs konar efnakljúfur (enzym) hefur fundizt í ungum rottum, sem leysir upp vaxhýðið, er ver berklabakteríur fyrir lyfjum og hvítum blóðkornum, og uppgötvun og tilbúning sýklaskæðra lyfja úr myglusveppum og ýmsum tegundum af jarðvegsbakteríum. Á sviði næringarfræðinnar hefur fengizt vitneskja um, að tilteknar aminosýrur eru nauðsynlegar til þess að likaminn geti unnið tiltekin störf, og er þar opnuð leið til þess að ná betri tökum en áður á þeim störfum. Nýjar aðferðir hafa verið reyndar til að rannsaka út í æsar samband tauga og vöðva, og gæti það leitt til þess, að vér fengjum betri tök á að lækna lamanir og vöðvasjúkdóma. Mælt er og, að tekizt hafi að búa til mjög ódýrt gerlasíróp. sem breyti þannig gerlagróðri í þörmum manna, að þeir geti bæði melt tréni, eins °g grasbítir, og búið þar lil B-fjörvi eftir þörfum. Krabbamein eru enn óráðin líffræðileg gáta, en þó hafa orðið mikilsverð- ar framfarir í rannsóknum á þeim. Þar er samt enn margt ógert °g sömuleiðis í ofnæmisfræðinni, en það er fyllsta ástæða til að íella, að því fækki óðum áður en langur timi líður. Vitið hefur losað mannkynið við marga þáttu lífsbarátt- unnar, sem aðrar skepnur eiga við að stríða. Maðurinn hefur að fullu og öllu ráð villidýra i hendi sér, og hugvit hans býður vindi og sjó birginn. Eins og vér höfum séð, hefur hann

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.