Andvari - 01.01.1948, Qupperneq 13
ANDVARI
Rögnvaldui' Pétursson
9
hafs, glæða íslenzka þjóðernisvitund, þekking og ást á is-
lenzkum menningararfi og tryggð við ættlandið, er harla mikil
orðin og verður seint fullgoldin. Þeim er það ekki sízt að þakka,
að prófraunin var með heiðri af höndum leyst.
Andvari hefur talið sér skylt áður að halda á loft minn-
ingu noklturra hinna helztu forvígismanna meðal Islendinga
vestra, jafnhliða minningu annarra helztu þjóðskörunga vorra,
og mun svo enn gert. Að þessu sinni skal hér minnzt eins manns
úr þeirra hópi, er um langa hríð bar hátt merki íslenzkrar
þjóðrækni og íslenzkra mennta vestan hafsins, síra Rögnvalds
Péturssonar.
II.
Rögnvaldur Pétursson var fæddur 14. ágúst 1877 að Ríp í
Hegranesi. Faðir hans var Pétur Björnsson málara, Jónssonar
smiðs í Lóni í Viðvíkursveit, Björnssonar prests í Stærra Ár-
skógi, Jónssonar. Kona Jóns Björnssonar í Lóni og lang-
amma Rögnvalds var Sigurlaug Jónsdóttir, Hallgrímssonar,
systir hins lcunna fræðimanns, Hallgríms djákna Jónssonar;
en þau voru aftur bræðrabörn, Sigurlaug og Tryggvi Gunn-
arsson, liinn þjóðkunni athafnamaður, síðast bankastjóri.
Ber ættrakning þessi, þótt stutt sé og ófullkomin, glögglega
með sér, að í íöðurkyni Rögnvalds var ættgengur hagleikur
og verkhyggni. Kona Péturs Björnssonar og móðir Rögnvalds
var Margrét Björnsdóttir bónda á Auðólfsstöðum í Langadal,
Ólafssonar, Björnssonar, Guðmundssonar Skagakóngs í Höfn-
una á Skaga, Björnssonar. Bróðir Björns á Auðólfsstöðum var
sira Arnljótur Ólafsson, síðast prestur á Sauðanesi. Móðir
þeirra Auðólfsstaðabræðra og amma Margrétar Björnsdóttur
var Margrét Snæbjarnardóttir, prests í Grímstungum, Hall-
dórssonar, biskups, Brynjólfssonar; en bróðir hennar var
Brynjólfur, faðir Þóru, móður þeirra Víðivallabræðra, Brynj-
ólfs Péturssonar, Péturs bislcups og Jóns háyfirdómara. Móðir
Margrétar Snæbjörnsdóttur og kona síra Snæbjarnar í Gríms-
tungum var Sigríður Sigvaldadóttir, Halldórssonar, prests á
Húsafelli, bróður Bjarna sýslumanns á Þingeyrum. Kona
Björns á Auðólfsstöðum og móðir Margrétar Björnsdóttur var