Andvari - 01.01.1948, Page 18
14
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
skipulagningu félagsins, nafninu breytt, lcallað hið únitariska
kirkjufélag íslendinga, og efnt til veglegrar kirkjubyggingar
handa Winnipegsöfnuðinum, er fullgerð var 1905 og kalla má
táknræna fyrir hinn nýja anda framtaks og þróunar, sem nú
var til sögu kominn. 1904 stofnaði síra Rögnvaldur mánaðar-
ritið Heimi, ásamt nokkrum frjálslyndum mönnum öðrum,
en rit þetta varð nú um hríð höfuðmálgagn frjálslyndis um
trúarefni meðal íslendinga og fræðslu um ýmis menningarmál.
Kom það út um 9 ára bil, hætti 1914. Var nú hafin skipuleg
sókn af hálfu þeirra manna, er fylgdu frjálslegri stefnu í
trúmálum, og varð þeim þegar mikið ágengt. Haustið 1909
varð hreyting á starfi síra Rögnvalds, er hann gerðist út-
breiðslustjóri íslenzka únitariska kirkjufélagsins, og gegndi
hann því að sinni um 3 ár og feiðaðist þá víða um byggðir
íslendinga og varð mikið ágengt. Árið 1913 urðu eigendaskipti
að blaðinu Heimskringlu og réðst svo, að síra Rögnvaldur gerð-
ist ritstjóri hennar. Mun hann hafa ætlað, að með því móti
inyndi hann geta unnið áhugamálum sínum enn meira gagn, en
Heimskringla var og er sem kunnugt er annað áhrifamesta
blað íslendinga vestra. Hér fór þó svo, að honmn þótti, er frá
leið, fullþröngt uin sig í ritstjórasessinum og sagði starfinu
af sér eftir rúmt ár, 1914. Haustið 1915 tók hann svo aftur
við prestsstarfi hjá íslenzka únitarasöfnuðinum i Winnipeg
og gegndi því fram um árslok 1922.
Á fyrstu prestsskaparárum sira Rögnvalds í Winnipeg og
hinum fyrri útbreiðslu- og framkvæmdastjóraárum hans á veg-
um íslenzka únitariska kirkjufélagsins voru margir frjálslyndir
söfnuðir stofnaðir í íslendingabyggðum, og völdust til þeirra
ágætir kennimenn, svo sem síra Guðm. Árnason, síra Albert E.
Kristjánsson, síra Jóhann P. Sólmundsson o. fl. Frjálslyndri tru-
málastefnu meðal íslendinga óx fylgi, og gætti þess líka innan
hins evangeliska lúterska kirkjufélags. Að þessu studdu einnig
áhrif heiman frá íslandi. Árið 1909 gerðust þau tíðindi, að
annar mesti leiðtogi hins evangeliska lúterska kirkjufélags.
síra Friðrik J. Bergmann, sagði sig úr lögum við það, og fylgd1
honum söfnuður hans í Winnipeg, Tjaldbúðarsöfnuðurinn.