Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1948, Side 20

Andvari - 01.01.1948, Side 20
16 Þorkell Jóhannesson ANDVARI minna skiptir í dreifða hópa, eða höfðu staðið með öllu utan safnaða, en gátu með engu móti ált samleið með hinu evang- elisk-lúterska kirkjufélagi. Ragnar E. Kvaran varð fyrsti for- seti hins sameinaða kirkjufélags og gegndi því starfi við góðan orðstír þar til hann hvarf heim til íslands 1933. All- margir ungir guðfræðingar frá Háskóla íslands fóru á þess- um árum vestur um haf og störfuðu um lengri eða skemmri tíma í þjónustu sameinaða kirkjufélagsins. Átti síra Rögn- valdur mestan þátt í því, en ráðstöfun þessi gafst vel og varð meðal annars að góðu liði í baráttunni fyrir eflingu þjóð- ræknisfélagsins og starfsemi þess til styrktar, sem síðar skal að vikið. En fyrst og fremst miðaði þetta til þess að draga úr og eyða ríg, sem ella var hætt við, að gæta myndi innan sam- einaða kirkjufélagsins, vegna þess að únitarar voru þar i meira hluta allt frá upphafi. Frá sjónarmiði únitara og þá eklci sízt af hálfu ameríska únitarasambandsins, sem íslenzka únitariska kirkjufélagið var ein deildin í, gat það virzt hæpin ráðstöfun að ráða til kennimannlegrar þjónustu og jafnvel til forstöðu kirkjufélagsins menn, er hlotið höfðu guðfræðilega menntun sína í guðfræðideild, sem óneitanlega var kennd til mótmælastefnu Lúters, og búið höfðu sig undir prestsstarf í þjónustu lúterskrar þjóðkirkju. Sjálfum var síra Rögnvaldi vel kunnugt um þann frjálslyndisanda, sem á þessum árum ríkti í guðfræðideild Háskóla íslands. Lærisveinar hennar ýmsir höfðu líka undanfarin ár starfað i nokkrum stöðum vestra og getið sér gott orð og traust margra frjálslyndra manna. Var hann því óhræddur við þessa breytingu. Og hann var nógu sterlcur að persónulegum yfirburðum og þrautreynd- um leiðtogahæfileikum til þess að sigra alla örðugleika, er ráð- stöfun þessari voru samfara. Sjálfur gaf hann upp prests- embætti sitt og lagði niður forsetadæmi silt í kirkjufélaginu, til þess að greiða brautina til samkomulags og sameiningar. Þó átli hann jafnan sæti í sljórn sameinaða kirkjufélagsins og studdi það með ráðum og dáð. Vinir hans ýmsir og sam- starfsmenn kölluðu hann oft sin á milli biskupinn, og er það raunar réttnefni. Eftir tuttugu ára starf hans fvrir unitara-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.