Andvari - 01.01.1948, Qupperneq 42
38
Jóh. Gunnar Ólafsson
ANDVARI
Vorið 1822 fluilist Sigurður til Reykjavíkur. Þar fékkst
hann við beykisstörí. Var hann i fyrstu hjá Sigurði Sívertsen
kaupinanni, en fluttist síðan að Brúnsbæ til Hannesar Erlends-
sonar skósmiðs. Þar bjó einnig Pétur Pétursson beykir. Síðla
árs 1823 hræddi Sigurður og félagar hans Pétur með alls konar
brögðum og töldu honum trú uin, að það væri draugagangur.
Um þetta orti Sigurður Draugsrímu. En Sigurður Thorgrímsen
bæjarfógeti sektaði Sigurð og félaga hans fyrir athæfið. Til
þess var upp á þessu fundið að ginna brennivín út úr Pétri,
og tókst það. Um þessar mundir virðist Sigurður hafa verið
ærið drykkfelldur.
Á þessum árum verzlaði Westy Petræus kaupmaður ennþá
í Reykjavík. Hann álti einnig verzlun í Vestmannaeyjum. Það
var Garðsverzlun, hinn forni einokunarverzlunarstaður. Haust-
ið 1824 réði Petræus kaupmaður Sigurð til þess að vera beyki
við Vestmannaeyjaverzlunina, og fór hann þangað um haustið.
Hann var þá 26 ára að aldri, og er líka lalinn svo í sálnaregistri
Ofanleitissóknar þá um áramótin.
Fyrir Garðsverzlun stóð Andreas Petræus. Hann hjó í
Skanzinum, en þar stóðu verzlunarhúsin og íbúðarhús verzl-
unarstjóra. Var þar nel'nt að Kornhól eða í Garðinum. Kona
Petræusar hét Andrea Christine Hedvig. Á vist með þeim var
Sigríður Nikulásdóttir. Hún var fædd að Narfakoti i Njarð-
víkum árið 1786 og var því 12 árum eldri en Sigurður. Hún var
vel kynjuð í háðar ættir. Nikulás, faðir hennar, var sonur
Snorra Gizurarsonar í Narfakoti, en móðir hennar var Margrét,
dóttir Runólfs bónda í Sandgerði, Runólfssonar, Sigurðssonar
og Margrétar, dóttur Guðna Sigurðssonar sýslumanns i Gull-
bringusýslu og Auðbjargar Kortsdóttur, Jónssonar á Kirkju-
bóli. Þetta er beinn karlleggur til Lofts ríka Guttormssonar.
Guðni sýslumaður var af Sandgerðisætt, og voru þeir æltmenn
komnir af Torfa Jónssyni í Klofa. Síðar giftist Margrét, móðir
Sigríðar, Þorsteini Jónssyni frá Brekkum í Holtum, bróður
Guðrúnar, konu Páls skálda. Bjuggu þau í Vestmannaeyjuni-
Óvenjuleg rækt hefur verið lögð við uppeldi Sigríðar. Hún
skrifaði laglega rithönd, og var það ótítt um konur á þeim