Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1948, Page 48

Andvari - 01.01.1948, Page 48
44 Jóli. Gunnar Ólafsson ANDVARI kot og hefur nú lengi verið í eyði. Steingrímur Thorsteinsson lýsir þannig húsakynnum á Grímsstöðum: Blasti efra bæjarkornið býsna smáa viður Hnausahraunið gráa. Hver spyr nú um innið Iága? Mikið orð hefur verið á því gert, að Kristín hafi verið vel efnum búin, þegar þau tóku saman, Sigurður og hún, og meira úr þeim gert en efni hafa staðið til. Skipti í dánárbúi Jóns Jónssonar fóru fram 20. júní 1833. Hreinar eignir búsins voru 707 ríkisdalir, og skiptist upphæðin milli tveggja barna Jóns, Kristjáns og Jóhönnu, samkvæmt erfðaskrá, sem Jón fékk konungsstaðfestingu á 1825. Innifalin i þessum eignum var jörðin Gröf í Breiðuvík, sem metin var á 350 ríkisdali. Hvort barn fékk þannig 178 dali í hlut auk jarðarpartsins, og er því auðsætt, að Jón hefur enginn efnamaður verið. Á hreppskila- þingi árið 1836 telur Kristín fram 1 kú, 6 ær og 1 liest og 3% lausafjárhundruð. Þá er Sigurður kominn að Grímsstöðum talinn vera þar lausamaður. Það hafa og vafalaust ekki verið efnin, sem löðuðu Sigurð að Kristínu, heldur hitt, að hún var kona ásjáleg og greind. Sigurður dvaldist hjá henni haustið 1835 um nokkurt skeið. t marzmánuði 1836 skrifaði hann Kristínu bréf, sem ber því ljósan vott, hversu hlýtt honum hefur verið til hennar. Segir Sigurður í þessu bréfi, að allt efni bréfs, sem hann hafi fengið frá Kristínu, hafi verið „mér ánægjufullt, stíllinn snotur og gáfulegur, sem lét mig enn verða varan við þína nýju fullkomlegleika i því, sem minnst er að vænta, höndin nett og lagleg, svo þegar ég verð sýslumaður, ætla ég óhikað að gera þig að hreppstjóra, því margur af þeim mætti óska að gela skrifað og stílað bréf líkt þínu“. Sigurður var ennþá kvæntur maður. Að vísu hafði hann i nóvember 1834 skrifað Ólafi Hannessyni Finsen, bæjarfógeta í Reykjavík, sem þá var settur stiftamtmaður, og farið þess á leit, að hann fengi skilnað við Sigríði Nikulásdóttur. Finsen svaraði því til, að þetta félli ekki undir embættisstörf hans,

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.