Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1948, Page 68

Andvari - 01.01.1948, Page 68
64 Óttar Indriðason ANDVARI Þegar líða fer að þeim tíma, að fiskurinn fari að verða til- búinn að hrygna, er hans vandlega gætt. Að minnsta kosti annan hvern dag er athugað, hvort ekki sé eittlivað af gál- unum tilbúið og hrognin tekin jafnóðum og svo er. Vanur maður finnur óðara þá er hrognin eru laus og koma eðlilega við lítinn þrýsting. Ekki má taka hrognin of snemma, enda þótt hægt sé að ná þeim, því að þá má búast við, að frjóvgun mistakist. Ekki er heldur gott að láta hrognin lnða í fiskin- um eftir að hann er tilbúinn að hrygna. Aðferðin við töku hrognanna er þessi í stórum dráttum: Vinstri hendi er tekið um stirtlu hrygnunnar, en þeirri hægri undir haus eða framhluta fisksins. Fiskinum er síðan lyft upp og honum snúið þannig, að bak hans veit að manni þeim, sem verkið annast. Sé um stóran fisk að ræða, ltemur haus hans upp í handarkrika mannsins hægra megin. í þessum stelling- um er fiskurinn stöðugastur og minnst hætta á, að maðurinn missi hann. Þá er þrýst með þumalfingri hægri handar á kvið fisksins, lítið eitt ofan við gotraufina. Ef fiskurinn er tilbú- inn til hrygningar, koma hrognin iljótlega. Þegar meiri hluta hrognanna er náð, er gjarnan strokið gætilega niður kviðinn. Ekki má nota afl við þessar aðgerðir, nema sem allra minnst. Er reynt að fá fiskinn til þess að liggja slakan og rólegan, en takist það, er hálfur gigur unninn. Varast skyldi að taka að- eins um stirtluna og lyfta fiskinum síðan lóðrétt upp. Ef hrognin eru orðin vel laus, getur slík meðferð orðið til þess, að þau með þunga sínum rifi himnuna, sem utan um þau er. Lenda hrognin þá út í meltingarfæri hrygnunnar. Þau hrogn, sem þangað lenda, eru töpuð. Auk þess er hitt, sem er þýðing- armeira, að þar draga þau fiskinn auðveldlega lil dauða. Hrognin eru látin koma í skál, sem höfð er vot, en ekki með neinu teljandi vatni. Þegar búið er að ná öllum lausum hrogn- um úr gálunni, er hængur tekinn og með hann farið á svipaðan hált og hrygnuna. Að því loknu eru hrogn og svil hrærð sani- an í skálinni mjög gætilega. Síðan er sett lítið eilt af vatni i skálina og hún svo látin standa með lirognunum dálitla stund- Á þessu tímabili þrútna hrognin lítið eitt. Stafar það af þv^

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.