Andvari - 01.01.1948, Síða 76
72
Óttar Indriðason
ANDVA ni
farið með notkun sulfalyfja, hafa þó gefið góðar vonir um,
að þar sé meðal fundið, sem koma niuni að haldi gegn þeim
vágesti. I öðrum tilfellum er fjörefnum bætt í fóðrið, og gefur
það ágæta raun, þar sem þau eiga við, en auðvitað eru þau
gagnslítil gegn bakteríusjúkdómum.
Til þess að fyrirbyggja kvilla, er hreinlæti bezta almenna
vörnin. Kistur og þrær eru hreinsaðar svo oft sem við verður
komið. Ef um tjarnir með moldar- eða malarbotni er að ræða,
er að vísu erfitt að koma því við, en slíkar tjarnir eru ekki
lengur mjög algengar. Seiðin komast furðu fljótt upp á það
að forða sér frá stráburstanum. þegar verið er að þvo þrærnar.
Kemur það sér vel, því að sjaldan verður því við komið að
taka þau burt úr þrónum meðan hreinsun fer fram. Þetta verk
verður þó að vinna með mestu gætni.
Lengra verður ekki farið út í sjúkdómavarnir og lækn-
ingar fiska í klakstöðvum hér í þessari grein, til þess vinnst
ekki tími.
Þegar liða fer að hausti og sílin eru orðin ársgömul, miðað
við þann tíma, er þau voru tekin sem hrogn í klakhúsið, fara
flestar kíakstöðvarnar að hugsa fyrir því að flytja burtu og
sleppa nokkrum hluta þeirra. Hversu stór sá hópur er, er
auðvitað misjafnt. Flestar stöðvar hafa nokkuð af seiðum
eftir og ala þau fram á næsta haust. Aðstæðurnar ráða miklu
um þetla, svo og, hvers konar vatn það er, sem silin eiga eink-
um að fara í. í einu tilfelli getur verið heppilegt að sleppa
fremur smáum seiðum, t. d. ef ekki er stunduð mjög mikil
veiði í vatninu eða ánni og því líkur fyrir því, að seiðunum
gefist tími til að vaxa og þroskast, áður en þau verða veidd.
Ef liins vegar veiðiskapur er mjög mikið stundaður á hinum
tiltekna stað, þýðir ekkert annað en sleppa þar hér um bil
fullvöxnum fiskum. Þó eru því auðvitað takmörk sett, hversu
lengi er hægt að halda laxi og öðrum þeim fiskum, sem nátt-
liran kallar til sjávar, á klakstöðvunum.
Einn dag koma því áhugamenn úr grenndinni, og flutn-
ingarnir hefjast. Dögum saman fer farmur eftir farm af seið-
um á stórum flutningabílum frá stöðvunum. Stanzað er við