Andvari - 01.01.1948, Side 92
88
Verklýðsmál á íslandi árið 1771
ANDVARI
]. Ásigkomulag vinnumanna er þannig, nær þeir eru til
eins húsbónda komnir, eru þeir oft og tíðum hjá sumum hverj-
um húsbændum lítt haldnir að fatnaði og þjónustu, nokkrir
geta varla hulið sinn líkama fyrir klæðleysi, mega ganga að
öllu, sem þeim er skipað, so vel í votviðri sem frosti og snjó,
fara á kvöldum úr sinum gagnvotum flíkum og stokkfreðnu
fötuin og mega so að morgni íklæðast þeim sömu aftur,
hvar af oft hefur orsakazt hinn mesti skaði, að nær þeir eru
so á sig komnir, kunna þeir auðveldlega að frjósa bæði á hönd-
um og fótum, sem og skeð hefur. Þar að auki mega menn
kasta sér niður ofan á eina rekkjuvoð með liörðum staurum
eður skógarviðarhrísi undir og mjög litlu af lieyi ofan á, líka
við sjósiðuna með marhálmi undir rekkjuvoðinni, sem hann má
annað hvort kasta sér ofan í óuppbúið, eður sjálfur rífa upp
þennan moð- eður marhálmsbálk, sem hann skal á hvílast,
er so jafn þreyttur nær upp stendur eins og þegar hann leggst
niður á kvöldum; og fyrir þessa skuld kviknar ekki mikill kær-
leiksvarmi milli húsbænda og þénara. Verkfæri til þjónust-
unnar eru so á sig komin, þau eru so þung, óliðug og örðug,
að þau þreyta mann meir en sjálft verkið, af sumum hús-
bændum óaðgætt, livort þau gagna i erviði eður ei, heldur má
þénarinn, allt, ef það ber nafnið, erfiða með þeim bæði á sjó
og landi, eftir hvers stands ásigkomulagi. En um veiting á matar-
útlátum sumra húsbænda verður ei so útfært sem vert er; á
sumum bæjuin fær vinnumaðurinn um mánuðinn einn fjórð-
ung, sem heita á smjör, til viðbitis, hvert ef hreinsast skal fyrir
eldnu, rírnar til fjórða parls, og harðan fisk, sem enginn hugs-
ar að bjóða kaupmönnum, oft og líðum skemmdan, myglaðan
og músétinn. Grautur úr sjó og vatni gefinn á morgna við
sjósíðuna so hrár, að ofan af má hella vatninu nær til fjórða
parts og situr þá mjölið eftir. Blautur fiskur, sem gefinn er hjá
sumum, bæði hrár og mjög illa lil búinn og hreinsaður. Af
þessu sprettur oft mögl og kærleiksleysi af undirgefnum. Og
soddan aðbúnaður bæði til fatar og matar orsakar margslags
sjúkdóma í landinu. Hvað þeirra launum viðvíkur eru það
frá 4—2 rd., sem ahnennilegir vinnumenn fá, og frá 8 til 6 álna