Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1949, Síða 18

Andvari - 01.01.1949, Síða 18
14 Eiríkur Einarsson ANDVAIU fiskframleiðenda var stofnað til æviloka Magnúsar var hann formaður þess og lét sér ætíð annt um, að því farnaðist vel. enda hafði hann glöggan skilning á þýðingu sjávarútvegsins fyrir þjóðarbúið og að markaðinum væri haldið til þess horfs, er bezt gegndi. Hann var meðal stofnenda Fiskifélags íslands, sat alllengi í stjórn þess og var fyrstur manna gerður heiðursfélagi þess merkilega félagsskapar. Hann var formað- ur fyrstu Landspítalanefndarinnar, formaður Byggingarsjóðs verkamanna frá stofnun sjóðsins til æviloka; átti sæti í landskjörstjórn við alþingiskosningar, og fleira mætti telja nefnda- og stjórnarstarfa, utan bankastjóraembættisins, er lionum voru falin fyrr og síðar. — Var það engin tilvilj- un, að Magnúsi Sigurðssyni væri flestum fremur treyst til þessara umræddu verka, því að allir vissu, að hann var gjör- hugull, úrræðagóður og fær í flestan sjó, auk þess sem eng- inn efaðist um ráðvendni hans og heiðarleik \úð allt, er hann tókst á hendur. Þeir, sem áttu hagsmuna að gæta eða báru fyrir brjósti nytsemi góðs félagsskapar, seildust eigi síður til Magnúsar til hollra ráða og verndar, er þeir vissu, hve tryggur hann var 'hverju málefni, er hann tók i umsjá sína, og að sterkri stoð var rennt undir hvert mál, er Magnús bankastjóri gerðist forsvarsmaður fyrir. — Eins og geta má nærri, jólc allt þetta lionum erfiði og lengdi vinnutímann. Það, sem létti þar undir, var hin niilcla hæfni til að átta sig fljótt á verkefnunum og leysa þau án yfirlegu. Við sjálf bankastjórastörfin var Magnús hljóðlátur og að jafnaði alvörugefinn. Var það stundum, að ókunnur við- skiptamaður taldi sig hitta þar fyrir embættismann í gamla stíl, svarafáan, torveldan og eigi gerlegt að leysa ráðgátu vilja hans. Stöku sinnum olli þetta misskilningi og rangri ályktun um, hver Magnús var. Þætti honum að athuguðu máli erindi komumanns refjalaust og sæmilegt og maðurinn sjálfur drengilegur, urðu erindislokin góð og kveðjur léttar að skilnaði. Var Magnús mannþekkjari og kvað einatt fara saman, hvernig honum gazt að manni við fyrstu sýn og reynslan eftir á. Hinir, er vissu, hver Magnús var, óttuðust
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.