Andvari - 01.01.1924, Side 152
146
Norræna kynið
Andvari'
sem menn vita til, að hafi lifað hjer í álfu, svo fullkunn-
ugt sje, er Neanderdalskynið, sem fanst fyrst í Rínar-
dalnum en síðar á Frakklandi, Spáni, Belgíu og Austur-
ríki, svo að auðsjeð er að það hefir náð útbreiðslu víðs-
vegar um álfuna. Það lifði fyrir síðustu íscld, hve mörg-
um tugum ef ekki hundruðum árþúsunda fyrir Krists-
fæðingu, er ekki auðvelt að segja. Vesalmenni voru
þetta, 155—160 cm. á hæð, og myndu ná góðum meðal-
manni vorrar tíðar í öxl. Sköpulagið var ljótt og lura-
legt, ennið uppmjótt, lítið og lágt, en brúnabungur ákaf-
lega miklar. Frammyntir voru þeir, en hakan lítil sem
engin. Oss myndu nú sennilega þykja þeir öllu líkari
dýrum en mönnum. Ekkerl ber vott um verulega menn-
ingu hjá þeim, þó sennilega hafi þeir notað steina fyrir
vopn. Húsdýr höfðu þeir engin. Sumt bendir til þess,.
að þeir hafi kunnað að nota eldinn. Eflaust hafa þeir
aðallega lifað af veiðum, en annars jetið alt, sem að
kjafti kom. Annars var þá gott að lifa hjer í álfu, því
loftslag var hlýtt og mikið dýralíf, ólíkt því sem nú er..
Mjög hæpið er það, að nokkuð af þessu kyni lifi í
ættum nútíðarmanna, því að það sýnist hafa dáið út með
öllu, hvort heldur sem breytingin á loftslagi, sem kóln-
aði stórum, er ísöld færðist yfir, hefir valdið því eða
næsta mannkynslóðin hefir útrýmt þessari. Það gengur
oft svo, að vesalir og illa mentir kynflokkar deyja út, er
aðrir hraustari og betur mentir brjótast inn í landið,
ekki síst ef þeir eru mannætur, eins og vel má vera, að
þessir fyrstu kynflokkar hafi verið.
Næsta kynslóðin, Auvignar-mennirnir og cro-magnon-
mennirnir, lifðu sunnan til í álfunni og jafnvel í Suður-
Englandi, meðan ísöldin gekk yfir og máske fyrir hana.
Þeir voru næsta ólíkir hinum: Háir að vexti (um 180
cm.) og vel vaxnir, langhöfðar flestir, (kúpubreidd 72—