Andvari - 01.01.1924, Page 170
Andvari
Uppruni lista.
1. Fleyg þú, lesandi eða áheyrandi, steini í lygnt vatn.
Þá muntu sjá hringa hefjast upp yfir vatnsflötinn um-
hverfis blettinn, þar sem steinninn sökk. Fyrsti hringur-
inn er gildastur og þrengstur, en sá næsti nokkru víð-
ari og nokkru grennri. Og síðan víkka hringarnir og
grennast koll af kolli, þar til þeir hverfa að lokum og
renna saman við sléttan og óhreifðan vatnsflötinn.
Hér er fengin rétt mynd af þekking vorri á öllum
sviðum. Hún er ljósust um það sem næst er, allra ljós-
ust um það, að vér sjálfir sjáum og skynjum1), en eftir
því sem svið þekkingarinnar stækkar, eftir því verður
hún óljósari og innihaldsminni. En þetta á ekki ein-
ungis við þekking vora yfir höfuð að tala, heldur og um
einstakar greinar þekkingarinnar, og nær þá einnig til
listanna. Þar vitum vér og mest um það, sem næst er í
tíð og rúmi, en minna um það sem fjær er. Inn í fram-
tíðina sjáum vér lítið eða sama sem ekkert og er þar
klipptur sundur þráður þekkingar vorrar. En mjög
skyggir og margt fyrir sýn vora inn í fortíðina, og fyrsta
upphaf sjáum vér eigi ljóslega í þessu efni fremur en í
öðrum. Þó er það ómaksins vert að rifja upp það, sem
1) Cogito, ergo sum, þ. e. eg hugsa, því er eg til.