Andvari - 01.01.1928, Page 81
Andvari
Gerhey.0
Sú heyverkun, sem hér verður gerð að umtalsefni, er
fyrst reynd af Erasmusi Gíslasyni, bónda á Vatnsenda í
Flóa. Hefir hann verið að reyna þessa aðferð nú um 6
ára bil og mun hafa byggt fyrstu heytóptina til þessarar
heyverkunar á Loptsstöðum í Flóa. Hefir hann á þess-
um árum verið að endurbæta þessa heymeðferð, eftir
því sem reynslan hefir sagt til, og byggt slíkar tóptir á
ýmsum bæjum í Arnessýslu, t. d. Skipholti, Drumbodds-
stöðum, Kolviðarhóli og á ábýlisjörð sinni, Vatnsenda.
Eins hefir hann nú á síðustu árum byggt nokkurar hér
í Reykjavík og hefi eg þaðan mína kynningu af þessari
heyverkun, og verður hér sagt frá henni, eins og hún
nú er hér almennt um hönd höfð. En þessi heyverkun-
araðferð virðist mér svo merkileg og geta orðið svo af-
drifarík fyrir íslenzkan landbúnað, að eg hika ekki við
að segja, að hún sé einhver hin merkilegaata uppfund-
ning, sem gerð hefir verið á sviði landbúnaðar, og fyrir
Islendinga er hún því merkilegri, að hún er íslenzk.
Þessi aðferð leysir á svo einfaldan hátt eitt hið allra
erfiðasta verkefni landbúnaðarins í öllum löndum, sem
lifa á búpeningsrækt og þurfa að afla heyja, að hún að
1) Nafnið hefir búið til Guðm. landlaeknir Björnson.