Andvari - 01.01.1915, Page 84
76
Fiskirannsóknir
a. Við Örum- og WuliTs-bryggju,
S0/7- aðfall.kl. 5j/4 e.m.,selta 19,65%o,sjóh. 12,0°,0fðm.
í9/7 - útfall, —1 lVa f.m., — 5,32°/oo, — 8,6°,0 —
%- _ —12 hád., — 15,85°/oo, — 10,8°,0 —
» - — —12 — — 28,82°/oo, — 12,0°, 1 —
b. Við kaupfélagsbryggjuna,
30/7- aðfall,kl. 5’/2 e.m.,selta 28,82°/oo,sjóh.l2,2°,Ofðm.
29/7 - útfall, —12 hád., — 9,43%o, — 10,8°, 0 —
%- — —121/2 e.m., — 17,29°/oo, — 11,8°,0 —
» . _ —121/,, — — 30,13°/oo, — 11,5°, 172 -
Seltan var þannig mjög misjöfn; þegar hún var
mest, var hún svipuð því, sem hún er vön að vera
hér við útstrendur, en þegar hún var minst, var hún
líkt því sem er hér í fjarðarbotnum, þar sem mikið
ferskt vatn fellur til sjávar, t. d. líkt og við Borgar-
nes, og alt of lítil fyrir þrif tréætunnar.
8. Eg var á Akureyri sumarið 1913. Ekki höfðu
menn orðið þar frekara varir við tréætuna í bryggj-
um, en áður, o: ekki fundið hana þar enn. Eg
skoðaði tré eitt mikið, sem hafði þá nýlega fundist í
botni inni við Leiruna, og hafði legið lengi í sjó, að
likindum tré úr Torfunefsbryggjunni, sem bilaði 1905.
Það var alsett ýmsum sjávardýrum, skeldýrum, sæ-
fíflum, ormapípum og svömpum, en engin merki
voru á því eftir tréætuna. í sambandi við það vil
eg geta þess, að mér var sagt að þangað á höfnina
hefði verið fluttur barkur frá Noregi til þess að hafa
fyrir geymsluskip, og hafði verið alvaxinn kræklingi
(krákuskel) á botninum, þegar hann kom. Svona
geta dýr íluzt lifandi á milli landa.
Af þeim upplýsingum, sem nú eru fengnar um
útbreiðslu tréætunnar hér við land, má víst fullyrða,
að hún getur þrifist vel alt í kringum landið, þar