Andvari - 01.01.1919, Page 60
40
Fiskirannsrknir 1917 og 1918
[Antlvari.
víðar sé leilað. Hann slundar veiðar jafnl vetur og
sumar á bál sínum »Baldri«, liggur við í Sandgerði
á velurna, en er heima þess utan. Tvö síðuslu sum-
ur heíir hann stundað síldveiðar með reknetum, ým-
ist í Jökuldjúpi eða á Eldeyjarbanka og gaf hann
mér ýmsar merkilegar upplýsingar um síldina á þess-
um slóðum. Hann hefir mikla trú á framtíð síldar-
veiða við suðvesturslrönd landsins og mun eg víkja
aflur að því síðar.
í Njarðvíkum voru í sumar 4 mótorbátar 10—15
tn., á Magnús einn þeirra ailan og tvo í félagi með
öðrum. Til þess að ferma og afferma báta sína hefir
hann gert fyrir eigið fé 60 m. langa bryggju úr steini
og tré niður undan bæ sínum. Hún stórskemdist í
fyrra vetur í norðanstórviðri, því að þar vantar
nauðsynlegan skjólgarð, lil þess að verja bryggjuna
sjávarróti í NA.-stormum, bæði hana og annað
merkilegt mannvirki, sem Magnús hefir látið gera í
félagi við mótorbátaeigendur í Keflavík, en það er
ágæt dráttarbraut fyrir mótorbáta; liún var gerð
veturinn 1916 —17 og er víst hin fyrsta við Faxa-
flóa utan Reykjavíkur. Brautin getur nú tekið á móli
6—8 bátum í einu, og má stækka hana (færa liana
út hliðanna) eftir þörf. Magnús er ungur maður og
byrjaði fyrir fáum árum mótorbátaútveg með tvær
hendur tómar, en er nú orðinn vel fjáður og ötull
forvígismaður og fröinuður allra þarfra fyrirtækja
þar syðra. Eg hefi ekki kynst mörgum mönnum í
hans stétt jafn víðsýnum og hleypidómalausum og
með jafn sferkri löngun til þess að bjarga sér án
styrks frá því opinbera og væri betur ef fiskimanna-
stétt vor ætti marga slíka.
Bátalegan á Njarðvík er allgóð skipalega, ágætlega