Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 49
43
Á Skotlandi var árið 1889 í hverju fjelagi að
aneÖaltali, hjer um bil:
486 fjelagsmenn,
106000 króna stofnfje,
387600 kr. verzlun, og
38200 kr. verzlunar-ágóði.
Á írlandi liafa kaupfjelögin átt erfitt uppdráttar.
Árið 1889 voru þar alls:
13 kaupfjelög með
1603 meðlimum,
194958 kr. stofnfje,
1019034 kr. verzlun, og
46440 kr. verzlunar-ágóða.
Fvrstu 20 árin unnu kaupfjelögin að miklu leyti
hvert út af fyrir sig, þó þau væru öll steypt í sama
mótinu. Það af vörum sínum, er þau ekki gátu
fengið hjá bændum og handiðnamönnum, keyptu þau
hjá stórkaupmönnum, þar sem hverju þótti bezt
:gegna. En eptir því sem tímar liðu fram, fundu
þau æ betur og betur, hve erfið þeim urðu viðskiptin
við kaupmenn. Smákaupmenhirnir, sem fjelagsmenn
voru áður vanir að verzla við, gáfu fjelögunum ó-
hýrt auga, og gjörðu þeim með ýmsu móti erfitt
fyrir. Þeir stofnuðu jafnvel samtök, og hótuðu stór-
kaupmönnunum að liætta viðskiptum við þá, ef þeir
seldu kaupfjelögunum vörur. En kaupfjelögin ljetu
koma krók á móti bragði; þau mynduðu samband
sín á milli, er vera skyldi nokkurs konar stórkaup-
maður fyrir fjelögin. Þetta samband komst á fót
1864, 20 árum eptir stofnan Rochdale-fjelagsins. Þá
var stofnað »Hiö ensTcci stórsölufjelag« («The Cooper-
•ative Wholesale Society Limited«), með þvl móti, að
mörg kaupfjelög á Englandi skuldbundu sig til að
leggja saman fje að tiltölu við meðlimatölu þeirra,
13 kr. 50 a. fyrir livern meðlim, er skyldi greiðast