Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 70
64
menn greiða stofnfje til fjelagsins, hvort heldur í
peningum, gegnum verzlun fjelagsins, eða með vöxt-
um og verzlunarágóða, þá skal geta þess í stofnfjár-
bóJdnni. I bók þessa skal rita nafn, stöðu og heim-
ili livers fjelagsmanns. Rita skal í stofnfjárbókina
framhaldandi registur yfir tölunúmer allra stofnbrjefa,
er sýni hverjum og hvenær þau eru afhent, einnig
registur eptir stafrofsröð yflr alla stofnbrjefaeigend-
ur, er sýni hve mörg stofnbrjef hver á, og hvaða
númer brjefln hafa. — 20. gr. Þegar eigaraskipti
verða að stofnbrjefum, skal innfæra eigaraskiptin í
stofnfjárbókina.
Framsal stofnbrjefa.
21. gr. Stofnbrjef skulu hljóða upp á nafn
eigara. Þau eru óuppsegjanleg, þar til fjelagið er
haflð, með þeirri undantekning, sem getur um í 23.
grein. Framselja má stofnbrjefin, en sækja verður
um leyfi til þess til stjórnarnefndarinnar. —
22. gr. Stjórnarnefndin getur samþykkt framsal
stofnbrjefa, en skjóta má hún því til samþykkis full-
trúafundar. Fáist ekki samþykki fundarins, getur
stjórnarnefndin innleyst stofnbrjefin með fullu ákvæð-
isverði, ef óskað er, og ef fulltrúafundur samþykkir
að svo megi gjöra. — 23. gr. Iíver fjelagsmaður
getur fengið innleyst fullu ákvæðisverði öll þau stofn-
hrjef, er hann á umfram 25, og hafi hann eigi eign-
ast þau við framsal. Krefjast verður hann þess
með brjefi til stjórnarnefndarinnar, og 3 mánaða
fyrirvara, aðstofnbrjefin sjeu innleyst. — 24. gr. Deyi
eigari stofnbrjefs, gengur stofnbrjefið til lögerfingja
hans eða hvers þess, sem eigari hefur löglega
ánafnað það, nema stjórnarnefnd og fulltrúafundur
vilji heldur innleysa brjefið fullu ákvæðisverði. —
25. gr. Þegar stofnbrjef er innleyst, skal eyði-