Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 71
65
leggja stofnbrjefið, og geta þess í stofnfjárbókinni.—
26. gT. Glatist stofnbrjef, getur eigari þess fengið
nýtt stofnbrjef, að undangengnum ógildingardómi
yfir hinu glataða stofnbrjefi. Borga verður fyrir
hið nýja brjef 1 krónu, sem gengur til fræðslusjóðs.
Varasjóður.
27. gr. Varasjóð skal stofna með því að leggja
árlega í hann 1% af öllum innfluttum vörum, sem
fjelagið verzlar með, eptir útsöluverði þeirra. I
varasjóð renna einnig tekjur samkv. 17., 63., 64.
og 68. grein. — 28. gr. Varasjóðinn skal setja á
vöxtu í Landsbankanum jafnótt og hann safnast.
Leggja skal vextina við höfuðstólinn og láta sjóð-
inn safnast, þar til upphæð hans hefur náð 7e af
upphæð stofnsjóðs. Eptir að sjóðurinn hefur náð þess-
um vexti, má á fulltrúafundi, með 2/;i atkvæða, gjöra
ákvörðun um að verja nokkru af sjóðnum og vöxt-
um hans samkvæmt tilgangi fjelagsins, en ávallt
skal gæta þess, að upphæð sjóðsins sje í minnsta
lagi '/e af upphæð stofnsjóðsins.
Frœðslusjóður.
29. gr. Fræðslusjóð skal stofna með tillögum
þeim, sem getið er um i 13., 16., 26., 54. og 61. gr.
— Sjóðnum skal varið til að auka þekkingu fjelags-
manna á fjelagsmálum, á verklegum framförum o.
fl. Ennig má verja nokkru af sjóðnum til að koma
á samvinnu við önnur kaupfjelög. — Helming af fje því,
sem rennur í sjóð þennan, má árlega verja til þess sem
nú var talið, og annars, samkvæmt tilgangi sjóðsins,
eptir ákvæðum fulltrúafundar. — Um næstu 10 ár
skal leggja helming af árlegum tekjum og alla vexti
við sjóðinn. Fyrir sjóðnum skal árlega gjöra sjer-
staka skilagrein. — 30. gr. Jafnótt og fræðslusjóð-