Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 81
75
Ir þennan fjenað, að því leyti sem rúm var fyrir
liann í skipum íjelagsins.—Sá sem ekki kaupir þann
varning allan, sem hann hefur pantað, eða útvegar
kaupanda að honum í tækan tíma, er skyldur að
greiða fjelaginu skaðabætur eptir ákvæðum fulltrúa-
fundar, eða eptir gjörðardómi. Skaðabætur þær, er
ræðir um í þessari grein, teljast með tekjum fje-
lagsins.
Fjelagið telcur lán.
71. gr. Til að auka veltufje fjelagsins mástjórn-
arnefndin eptir ráðstöfun fulltrúafundar taka lán
til handa fjelaginu lijá Landsbankanum eða hverjum
öðrum opinberum sjóði með minnst 10 ára afborg-
unarfresti og sem nemi í mesta lagi jafnmikilli upp-
liæð og stofnfje það er, sem fjelagsmenn hafa feng-
ið stofnbrjef fyrir, þegar lánið er tekið. Veðsetja
má fyrir láninu stofnsjóð, varasjóð, veltufje og all-
•ar aðrar eigur fjelagsins. Ekki bera fjelagsmenn
frekari ábyrgð á skuldum fjelagsins en að því leyti
sem stofnfje þeirra nær til, nema þeir hafi sjerstak-
lega telcið á sig frekari ábyrgð.
Ábyrgð stjórnarnefndar.
72. gx. Stjórnarnefndarmenn ásamt formanni og
varaformanni, allir fyrir einn og einn fyrir alla,
hafa ábyrgð á, að ekkert af eignum eða skjölum tje-
lagsins fari forgörðum fyrir óvarkárni eða hirðuleysi,
sem nefndinni, kaupstjóra eða starfsmönnum fjelags-
ins verðurum kennt. Stjórnarnefndin getur og heimt-
■að þá ábyrgð, er henni þykir hæfileg, frá kaupstjóra
og öðrum starfsmönnum fjelagsins, sem liafa með
höndum áríðandi störf fyrir fjelagið eða taka móti
.peningum fyrir það.