Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 82
76
Endurslcoðun reikninga.
73. gr. Tveir eða þrír menn skulu kosnirí nefnd’
til þess að endurskoða reikninga fjelagsins árlega„
Einn þeirra er kjörinn formaður nefndarinnar. Nefnd-
in er kosin til 2 eða 3 ára, eptir því hvort 2 eða 3
menn eru í henni. Avallt fer einn af endurskoðun-
armönnum trá á hverjum fulltrúafundi, og annar er
þá kosinn í hans stað. Kjósa má þann er frá hefur
farið. í fyrstu ræður hlutkesti hver frá skuli fara,
síðan fer sá frá sem lengur eða lengst hetur setið..
Fulltrúafundur ákveður tölu endurskoðunarmanna..
— 74. gr. Endurskoðunarnefndin skal rannsaka
nákvæmlega alla reikninga fjelagsins, um kaup og
sölu á vörum erlendis og viðskipti innanlands, um
kostnað allan, um stofnfje, varasjóð og fræðslusjóð.
Skal nefndin rannsaka, hvort öll nauðsynleg skjöl
eru fyrir hendi, og heimta af stjórnarnefndinni það
sem vantar. Einnig skal endurskoðunarnefndin að-
gæta, hvort nokkru af fje fjelagsins er varið án
heimildar í lögum þess eða fundarályktunum’. Þeg-
ar endurskoðunarnefndin hefur lokið við rannsókn
reikninganna, skal hún koma fjenu tafarlaust, og eigi
síðar en 20. febr., til formanns stjórnarnefndarinnar,
ásamt greinilegum athugasemdum um allt er hún
finnur athugavert við reikningana. — 75 gr. Ef
fulltrúafundur samþykkir breytingar á reikningun-
um, þá skal annaðhvort breyta þeim strax sam-
kvæmt þvi eða láta breytingarnar koma fram í
næsta árs reikningum. Fundurinn sker úr hvort
heldur skal gjöra.
Þólcnun til stjórnarnefndar, endurskoðunarmanna
og fulltrúa.
76. gr. Stjórnarnefnd og endurskoðunarmenn
fá þóknun fyrir störf sin og ómök í þarfir fjelags-