Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 83
77
i ns eptir reikningum, sem fuiltrúafundur rannsakar
og úrskurðar. Fyrir að sækja fulltrúafund og auka-
fulltrúafund, fá stjórnarnefndarmenn söinu þóknun
sem fulltrúar. Endurskoðunarmenn fá sömu þókn-
un fyrir að sækja fulltrúafundi. — 77. gr. Full-
trúar fá þóknun fyrir að sækja fulltrúafundi 2 kr.
-á dag, eptir dagleiðum sem fulltrúafundur ákveður.
•Skal borgun þessi tilfærð í verzlunarreikningum full-
trúanna það ár. Sömu þóknun fá fulltrúar fyrir að
sækja aukafulltrúafundi.
Málaferli og lcœrur.
78. gr. Varnarþing tjelagsins er þar sem for-
maður stjórnarnefndarinnar er búsettur. Iíver fje-
lagsmaður er skyldur til að mæta á varnarþingi fje-
lagsins, ef fjelagið lætur höfða mál gegn honum. —
79. gr. Kærur, hvort heldur um skekkju i reikn-
ingum, um aðgjörðir starfsmanna fjelagsins eða ann-
að, skulu gjörðar skrifiega og sendar fulltrúafundi.
Fundurinn setur nefnd til að rannsaka allar þær
kærur, sem honum berast, og að fengnum tiilögum
nefndarinnar, leggur hann úrskurð á þær eða vísar
þeim til gjörðardóms, ef þær heyra ekki undir afskipti
hins opinbera. Kröfur fyrir skemmdir, rýrnun,
ranga vigt, talning eða mál á vörum, er ekki skylt
að taka til greina, nema komið sje fram með þær
við móttöku vörunnar eða síðar fullsannaðar. —
80. gr. Ef kært er yfir því, að stjórnarnefndar-
maður einn eða fieirí hafi misbeitt valdi sínu eða
vanrækt skyldur sínar og þar með bakað fjelaginu
skaða, þá skal fulltrúafundur taka kæruna til með-
ferðar, og skera úr með atlcvæðum fulltrúa þeirra
•og endurskoðunarmanna sem á fundi eru, livort gjöra
skuli ábyrgð gildandi á hendur nefndinni eða ekki.
'Ef s/3 atkvæðanna samþykkja að svo skuli gjört,