Spegillinn - 01.12.1954, Page 19

Spegillinn - 01.12.1954, Page 19
SPEGILLINN 191 færði þakkir þjóðar sinnar fyrir snöfurlega hjálp forsetans, þegnum hennar til handa, er undir þá flæddi. Varð forseti í fyrstu fár við, er hans hægri hönd eigi mátti vita um fram- in verk innar vinstri, áttaði sig þó brátt, kvað þetta mundu satt vera og hað drottningu halda til góða. í inum sama pósti barst Freymóði bréf, undirritað af Sjaron Brús, góð- frægri fatafækkunarlistakonu, er hér hafði þá nýskeð sig alla snúið og undið að forlagi gúttapela, við mikinn fögnuð áhorfenda, er kváðu hana valdið hafa straumhvörfum með þjóðinni í kynferðismálum, og báðu hana seint fara og fljótt aftur koma og sem fæst klædda. Lá Sjaron vel orð til Islendinga og kvað þá vera bókmenntaþjóð. Það skeði tíðinda í Húnavatnsþingi norður, að sigurverk fannst á heiðum uppi, hafandi þar samflevtt xlviii ár legið og var þó enn velgangandi, sýndi auk þess sumartíma, er erlendir svo kalla en vér búmannsklukku. Þótti fundur þessi jartein mikil og kölluðu jafnvel nokkrir ekki and- skotalaust vera, en Húnvetningar eru sumir enn fornir í skapi og halda fast við trú forfeðra sinna, inclusive andskot- ann og standa þar framar mörgum landsmönnum öðrum. Jarðeplaeinokun ríkisins með óvenju blóma á árinu, þurfti nú eigi jarðeplin til landsins að flytja, er gnægð liafði vaxið innanlands, en liafði afgang ríflegan, hverjum eð á sæ útvarpað var, sjávarkvikindum öllum til hins mesta ama og hrellingar. Drykkjur nokkrar í landinu en þó eigi um of; vóru nú aftur upp teknar skeinkingar mjaðar og mungáts í opinber- um gesthúsum, en réttarbótin við Bjarna kennd, hver eð meira en árlangt við mikið gildi en litlar vinsældir staðið Iiafði, var fyrir óðal lögð og mæltu margir, að farið hefði fé betra. Spurðist úr Indía almenni- legt verðfall elepliantium, en þeir höfðu áður notaðir verið af höfðingjum í þeirra processi- onibus og þá allir útstafferaðir og gullgalóneraðir; nú höfðu höfðingjar þar í landi misst völd nokkuð svo og mjög hættir að berast þannig á, almúganum til uppbyggingar og afþreyingar. Á búi ríkisins að Hesti í Borgarfirði var það nýmæli upp tekið að nota hormones til lijálpar við Iembingu sauð- kinda, en höfðu áður mest notaðir verið við algengum kvillum og sleni; varð ábati með þeim ágætum, að nú fæddu ær v lömb í stað eins áður. Þó bar nokkurn skugga á þessa gleði, er íhaldsær á Raufarhöfn norður fæddi jafn- mörg lömb með einstaklingsframtaki einu saman og veikti þetta almennt trú manna á forustu ríkisvaldsins í kynferðis- málum. Sundíþrótt mjög iðkuð í landinu og nú að öðru sinni keppt við norrænar þjóðir á cc stikna færi. Laut í lægra haldi fyrir Svíum, sökum óviðeigandi útreiknings og liöfðu þó svovel kýr landsmanna sem erlendir verndarar freistað að bjarga þjóðinni í keppni þessari, en kom fyrir ekki; varð öllum hérlendis til ama og angurs, er frá eru taldir Rósinkrans og Stephan Jóliann, en þeir elskuðu svenska svo sem sitt eigið líf. Fordæmir hans heilagleiki páfinn buxnanotkun kvenna á almennilegu kirkjuþingi og kveður heilaga ritn- ingu slíkan klæðnað með öllu forbanna, og fleira færði lians heilagleiki máli sínu til sönnunar. Kosið til bæjar- og sveitastjórna um heim allan, þar í bland á íslandi og svo í Kópavogi, varð sú kosning einkum söguleg, er Þórður hreppstjóri, kallaður höfuðkempa til vopna sinna, óð iii reisur gegn um fylkingar óvinanna, blóðugur til axla og bruddi skjaldarrendur. I Svissaralandi, sem sumir nefna Helvetiu gerðist snær svo torgætur, að allsherjarskömmtun var á lionum upp- tekin, til gesta landsins, en sjálf fengu landsins börn engan skammt, gátu þó með margháttuðu svindliríi nokkurn ábata af þessu liaft. Brennuvínssala afnumin með lögum í höfuðstað SÍS á Akureyri norður, þótti mörgum þyrstum gerast þröngt fyrir dyrum og var almanna rómur, að höfðingjar þeir er bann þetta etablerað höfðu, ættu sér formælendur marga. Leituðu menn í þessum öngum sínum til Siglfirðinga, er séð höfðu fyrir, hvað verða vildi og öll hönn aldeilis af- hrópað; brugðu við drengilega og leystu þann vanda að brauð- fæða Akureyringa að drykk. Var mjólkurskipi einu góðu, er Drangur nefndist í fússi í brennuvínsskip upp slegið og tók nú að auðgazt, en áður hafði þess ævi órífleg verið. Á Malakkaskaga, en það er í Asía austur, fannst merki- legt tríó manna, sem nokkur grunur lék á, að væri frum- menn, kölluðu höfðingjar jafnskjótt Alexandrum til lijálp- ar, ef mætti af þeim fregna, hvernig lært liefðu að tala; sást brátt, að þeir vóru alls dumbir; var þá með lófataki samþvkkt, að liér væri alls eigi frummenn komnir en aðrir ennnú eldri. Guðrækni í foráttuvexti í landinu og fjárbeiðnir stórar til kirkna og klaustra, er reisa skyldi, en áður voru happ- drætti komin á hvern dag ársins, svo að Ieita varð til manna á annan og betri hátt, liöfðu margir af stórt angur, er þeir áttu um að velja aura sína eða sáluhjálp af liendi að láta, og þótti hvortveggja kosturinn illur að vonum. Gerðist og Skálholtsfélag umsvifamikið og réð í þjónustu sína grafara marga, er þar sátu sumarlangt á staðnum og vöktu upp drauga fleiri í senn en áður hafði sézt á Iandi liér, og linntu eigi fyrr en gjörvallur kirkjugarður staðarins var risinn. Komu þar upp margir biskupar nafnkenndir, þeirra ágætastur Páll Jónsson Loptsonar, er í einni stein- þró hafði urðaður verið; var mikil von manna, að þarna myndi finnast gnótt gulls og gersema, er blessaður Páll

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.