Spegillinn - 01.12.1954, Síða 23

Spegillinn - 01.12.1954, Síða 23
SPEGILLINN 195 framin á annari hverri síðu, og bráðfyndnir innbrotsþjófn- aðir á hinni, hvortveggja kryddað með stórfenglegum lýsing- um á æðisgengnu kvennafari. — Að nokkur manneskja skuli geta lesið þennan óþverra, sagði sjálfstæðismaðurinn og benti á kvensurnar. — Glæpa- ritin og Morgunblaðið eru nú einu bókmentirnar, sem sjálf- stæðismenn hafa áhuga á, sagði þjóðvarnarmaðurinn. — Þau eru nefnilega samherjar í baráttunni við kommúnismann, sagði línukomminn og glotti. — Það sér ekki á, að unga fólkið sé betur menntað núna en í mínu ungdæmi, þegar engir skólar voru til, sagði framsóknarbóndinn. — Það er nú óskadraumur Framsóknar að leggja niður alla skóla nema Samvinnuskólann og Bréfaskóla SÍS, sagði vinstri- kratinn. — Ekki segi ég það nú kannski, sagði hægrikratinn. Nú flutti bóndinn smáræðu um sveitasælu, rollur og merar, hrútasýningar og ráðunauta. — En að þú skyldir ekki koma með merarnar þínar í bæinn, sagði einlileypingurinn. — Já, þær hefðu getað kosið Framsókn í næstu bæjarstjórnar- kosningum, sagði þjóðvarnarmaðurinn. Að minnsta kosti hefðu þær trúlega komizt í djobb bjá Sambandinu, sagði línukomminn. — Ætli ég hafi ekki verið sjálfráður að því, hvað ég gerði við mínar merar, anzaði bóndinn allsnúð- ugt. — Áttirðu ekki líka forláta hrúta, ha? Eysteinn hefði nú verið til með að útvega þeim smábitling, sagði vinstri- kratinn ofsakátur. — Andskotans kjaftæði er þetta, sagði hægrikratinn. — Ja, það er bara verst, ef Sambandið tekur upp einkarekstur á framsóknarbændum, sagði sjálfstæðis- maðurinn. — Og heimtar kannski uppbót á þá, sagði línu- koinminn. Bóndinn leit þykkjulega á samherjann í barátt- unni við kommúnismann. — Það situr nú illa á Kvöldúlfs- klíkunni, sem kallar sig sjálfstæðisflokk að vera með stór- yrði um heiðarlegt fólk, sagði liann svo háðslega. — Hvern- ig er það, er Tíminn alveg hættur að birta graðhestafréttir? spurði þjóðvarnarmaðurinn. — Já, vel á minnst; ætli Ingrid Bergmann fari ekki bráðum að verða ólétt einu sinni enn? spurði vinstrikratinn. — Á ég að svara til þess? sagði bónd- inn. — Þið ættuð að vita, hvað mig dreymdi í nótt sagði hægrikratinn. — Komdu með það, sögðu þrír í senn, og kvenfólkið leit snöggvast upp úr Afbrotum, ef vera kynni, að hægrikratann hefði dreymt stórfenglegt innbrot eða jafn- vel morð. — Já, það var svoleiðis, að mér þótti ég vera á fámennum fundi... — Það hefur verið fundur hjá Alþýðu- flokknmn, greip þjóðvarnarmaðurinn fram í. — Og senni- lega bara hægri klíkan; voru þeir ekki allir dús? sagði línukomminn. — . . . og sumir fundarmenn voru akfeitir en aðrir skinhoraðir, og þegar minnst varði liurfu þessir horuðu inn í þá feitu, hélt hægri kratinn áfram. — Hægri klíkan sem sé gleypir vinstri klíkuna, sagði sjálfstæðis- tnaðurinn. — Ætli ekki heldur, að íhaldið gleypi hægri klíkuna og vinstri klíkan leysist upp í ekki neitt, sagði bóndinn. — Það mætti segja mér, að þess yrði ekki langt að bíða, að allir framsóknarbændur settust að á mölinni og færu að skrifa ævisögu sína, sagði þjóðvarnarmaðurinn. — Kannski SÍS láti byggja dvalarheimili aldraðra fram- „Kátt er um jólin og koma þau senn, þá munu upp líta Gils-Bakkamenn“. Upp munu þeir líta og undrast þaó víst ennþá stendur Bjarni, sem varói þá sízt. Enn stendur hann Bjarni, sem blygSunarlaust barnaskólastjórana skipaði í haust. Barnaskólastjórar voru Bjarna prívatmál, helmingagatan hún gerist stundum hál. A helmingagötunni Bjarni brá á leik, en framsóknarástin eigi hann sveik. í framsóknarástinni finnst ekki tál, ástin sú hefur jafnvel hertekiö Pál. Astin sú fœdd er og alin blind, fyrirgefur allt nema ódrýgóa synd. Fyrirgefur allt, nema ekki honum Berg, sem fœddur er upp á Framsóknarmerg, sem fœddur er upp viö Framsóknar brjóst, þaS sá hann Hermann svo hrollvekjandi Ijóst. Þctö sá hann Hermann, hve mikils var misst, er Gils-Bakkabratöur þar gengu úr vist. En Gils-Bakkabratörum þó gifta sú brást að deila með Framsókn Ihaldsins ást. Ihaldsins fafimur er opinn og stór vesaling jafnt eins og Vilhjálmi Þór. En vesœlt er Gils-Bakkabratöra Itö, svo Bjarni gaf frat í vantrausttö. Bjarni gaf frat í „Frjálsa Þjétö“ og forkláraöur í Ijóma stóð. ForkláraSur í frelsaSra hring, en Framsókn vitnandi stóS í kring. AS prýddi hann réttlœtis skrúSi skœi, sú skoSun þó enn mun ei Tímabœr. Grímur. sóknarbænda, ef Vilhjálmur getur útvegað lán í Lands- bankanum, sagði vinstrikratinn. — Nema þeir stofni bara byggingasjóð, fyrir liaugliúsastyrkina. Það yrði nú dálag- legur skildingur, sagði línukomminn. — Kaffitíminn er búinn, sagði reddarinn og stóð upp, en frekari umræðum var slegið á frest í bili. Kvensurnar lokuðu Afbrotalieftun- um og brutu upp á blaðið, þar sem þær hættu, svo að þær þyrftu ekki að eyða dýrmætum tíma í að leita að blaðsíð- unni, sem þær lásu síðast, næst þegar þeim gæfist tóm til að fletta upp í gullaldarritunum. Rabbi.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.