Spegillinn - 01.12.1954, Qupperneq 30

Spegillinn - 01.12.1954, Qupperneq 30
202 SPEGILLINN BLINDSKERS. Frh. frá bls. 198 hún þarf að aka á Hitlersvegi. Það fór svo hrottalega fyrir henni í Hamborg í sumar, einn morgun undir málmbjört- um hausthimni, þegar séra Sigurður keyrði af stað í slík- um vagni eftir slíkum vegi, en hún varð að taka venju- lega lest til Hollands, án allrar rómantíkur. — Skítt með alla rómantík, sagði Hálfdán og fékk sér annan til. — Aldrei getur þú haft neina tilfinningu fyrir því list- ræna í lífinu. En það er hægt að aka af einni Hitlers- braut inn á notalega hjábraut á leið til Bremen og setjast þar og drekka mjólk úr pelanum sínum, eða þá eitthvað annað. Og þetta gerði hann og át brauð með, ég meina með mjólkinni. — Ég hefði nú heldur gert eitthvað annað, sagði Hálfdán. — Þú gerir víst oftast eitthvað annað en það, sem við- eigandi er hverju sinni, sagði Hallbjörg. — En það er rómantík í Bremen, sem er gömul og fékk erkibiskup ár- * ið 787 og þar hefur oft verið nokkur velmegun. Og á leið- inni til Aldinborgar voru tveir bjórar komnir í nestispok- ann. — Sjáum til. Þetta hefur verið að smálagast og skapast svokallaður stígandi í sögunni, sagði Hálfdán og hló dálít- ið. Hann var orðinn sæmilega kátur og fór að raula með sinni mýkstu míkrófónsrödd: Ó, Stína, Ó Stína, ég sé þig í anda. — Eru engjn takmörk fyrir því hvað þú getur verið simpill? spurði Hallbjörg, eins og henni væri það ókunnugt. Gefíð njt§amar jólagjafir. Nú er úr inikiii og góðu að velja. ÍKacjnar d3íöncla f li.fí. Sé bókin auglýst — fæst hún í Bókabúð Lárusar Bléndal Skólavörðustíg 2 — Reykjavík Brunatryggingar * Líftryggingar * Sjó- og stríðstryggingar Vátryggingarshrifstofa Sigfúsar Sighvatssonar Sími 82931 — Lœkjargötu 2 — Reykjavík.

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.