Spegillinn - 01.12.1954, Síða 46

Spegillinn - 01.12.1954, Síða 46
21B SPEGILLINN GERVIAUGU eru nýkomin á markaðinn austur í Tékkóslóvakíu, og hafa þann höfuðkost, samanborið við þau, sem hingað til hafa verið notuð, að hægt er að gjóta þeim í allar áttir, en þau gömlu stóðu alltaf eins og stíf og freðin. Er sagt, að yfirvöldin hafi ýtt mjög eftir þessari upp- finningu hjá hugvitsmanninum, svo að hálf- og alblindir menn geti framvegis gefið vestrænni menningu hornauga, hvenær sem þess verð- ur krafizt. í PRÖVDU, heimilisblaði sovétstjómarinnar, lesum vér fyrir nokkru ályktun frá flokknum, undirritaða af Krústséff, kunningja vorum, einum saman, þess efnis, að frámvegis skuli menn fara hægt í þa5 að gera grin að trúmönnum í sovéttinu eða særa þá á þessu sviði — hvað sem um önnur svið kann að vera. Líklega er það þessari ályktun að þakka, að Þjóð- viljinn er steinhættur að skamma Trúmann, fyrrum Bandaríkjaforseta, nema það sé af því, að Æk sé svona miklu verri. FÉLAGIÐ KYNNING, sem hefur tekið sér það hlutverk að sýna hér allskonar heimsfræga menn, hefur nú boðið nóbelsverðlaunagripnum Hemingway hingað, til að lesa dálítið upp úr verkum sínum, og ku hafa lofað honum enn meiri lukku en Wildenvey gerði forðum. Þetta þótti sniðugt hjá félag- inu, þar sem vitað er, að höfundurinn liggur lemstraður eftir viðureign sína við fíla og flugvélar. Verður því látið nægja að senda honum bara þjóðbúningsúlpu, ekki lakari en séra Hilarius fékk, þegar hann var á ferðinni. ÞJÓÐVILJINN er eitthvað að fjasa um það, að byggingarkostnaður Heilsuverndar- stöðvarinnar sé kominn upp í 14,5 milljónir, en hafi verið áætlaður 7. Vér sjáum ekki, að vert sé að gera veður út af hálfri milljón, sízt ef krónan á nú eftir að lækka betur enn. Allar stœrðir Listskautar eða „Hockey“ skautar á skautaskóm kr. 391.00. — Hlaupaskautar á skóm kr. 576.00. —1 Listskautar kr. 172.00. — Skautar með skautalykli kr. 97.50. RENAILT Traustur Sparneytinn Rúmyóður Údtjr Columbus h.f. Brautarholti 20. Símar 6460 og 6060

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.