Spegillinn - 01.01.1957, Síða 5

Spegillinn - 01.01.1957, Síða 5
VELVAKANDI Morgimblaðsins liefnr hneykslazt gífurlega á gamanþætti, sem fluttur var í útvarpið á gamlárskvöld og segir, að svona bók- menntir geti í hæsta lagi gengið á árshátíð togarásjómanna. Mun mega taka þessi um- mæli sem staðfestingu á þeim sannleika, að Ólafur Thors sé nú hættur að gera út togara, og geri í hæsta lagi út áróðrabáta. SKÁLHOLTSKIRKJ A liefur undanfarið —- og revndar um all- langan aldur - verið hálfgerður garmur; þótt kannske sé guðlast að taka þannig til orða. Teikning að nýrri kirkju var gerð í fvrra, en þó vitanlega ekki messufær, svo að í lagi sé, og bygging hins nýja guðshúss mun taka mörg ár, nema nýja stjórnin finni upp einhver nýjan skatt til hygging- arinnar. Var því horfið að því ráði að inn- rétta bráðabirgðakapellu í hinu nýja svo- kallaða biskupshúsi á staðnum ekki er neinn biskupinn hvort sem er, og á þettá að duga fyrst um sinn. Hefur fyrsta bráða- birgðamessan þegar farið þarna fram og har ekki á öðru en allt fsgri vel. ALÞÝÐUBLAÐIÐ segir, að almenn ánægja liafi verið á ráð- herrafundinnm í París með afstöðu Islands til Atlanzliafsbandalagsins. Þessn viljum vér vel trúa, að fundarmenn hafi brosað í kampinn, þegar fulltrúi Islands var að éta ofan í sig það, sem nýhúið var að kjósa hann til þings upp á. SJÚKLINGUR sem lá í sjúkraliúsi einu í höfuðborginni fyrir nokkru, kvartaði einn daginn um sult og sannaðist þá, að hann hafði fengið mat sinn en engar refjar, eins og vant var. Loks rann upp ljós fyrir lionum: Hann hafði ekki fengið Moggann um daginn og af því stafaði sulturinn. Oss virðist sem hér hljóti að hafa verið um að ræða einhvern blaða- mann frá því ágæta blaði, sem liefur haft þá atvinnu að éta ofan í sig það, sem í því stendur. ALÞÝÐUBLAÐIÐ gat þess í lofgrein kring um áramótin, að ísfirma eitt hefði tekið upp þá nýbreytni að framleiða ístertur eftir pöntun og senda heim fvrir jólin: væru tertur jiessar ýmis- legar að lögun og bragði. Þetta er sízt of- mælt: að minnsta kosti höfum vér séð eina, sem var eins og Hamrafellið í lögun og með gróðahragði. HANNIBAL OG LÚÐVlK hafa talið sig samþykka frestun á hrott- flutningi varnarliðsins og „telja aðstæður ekki hepþilegar nú til að tryggja brottför þess“, lesum vér í Alþýðublaðinu, sem er sýnilega hreykið yfir þessum sinnaskiptum kommanna. Einnig vér erum fullir skiln- ings á þessu ■fyrirbæri, því að hver ætti að vernda þá kumpána fyrir Hermanni, ef varnarliðsins missti Aið. Að minnsta kosti myndi enginn innlendur maður fást til þess. PIETRO NENNI, hinn nafnfrægi ítalski kommi, hefur nú cndursent Stalinsverðlaunin, sem hann fékk fyrir nokkrum árum, til' þess að mót- mæla „fvrir sitt leyti“ meðferð Rússa- kommanna á Ungverjum. Finnst oss aðdá- unarvert, að Nenni skyldi ekki vera búinn að eyða aurnum fyrir löngu, en kannske er hann kapítalistakommi. Mogginn er eitt- livað að lýsa eftir því, að ónefnt íslenzkt skáld, sem sömu verðlaun hefur hlotið, fari eins að. Vér skorum á skáidið að hafa þessa áskorun auðvaldspressunnar að engu. Það er engin ástæða til að fara að flytja aura til Rússlands; Krúséff drekkur nóg, án þess. HEIMSMEISTARINN í sleggjukasti var hér á ferðinni fyrir skömmu og hélt fyrirlestra um íþróttir, sýndi íþróttakvikmyndir og sat samsæti í Moskó. Ennfremur veitti hanii innfæddum sleggjukösturum nokkra tilsögn í grein sinni, og sýnir það ósíngirni hins sanna íþróttamanns, þar sem liann getur alveg eins átt von á, að einhver lærlingurinn slái liann vit í næstu Ólympíu. Talsverður und- irbúningur hafði verið hér af liálfu íþrótta- manna undir komu þessarar heimsstjörnu, meðal annars hafði verið safnað saman allverulegum birgðum af óbörðum harð- fiski handa honum að spreyta sig á. Verð- ur liann síðar seldur með yfirprís, undir nafninu Ólympíuriklingur.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.