Spegillinn - 01.01.1957, Side 6

Spegillinn - 01.01.1957, Side 6
4 SPEGILLINN FRÁ PRAG cða Pröhu er os» eímað, að til mikilla slags* mála hafi dregið þar fvrir nokkru, í ýms- um búðum borgarinnar um handklæði, sem þar höfðu komið og í fyrsta sinn undir regíménti kommanna. Var þetta eingöngu gamalt kvenfólk, sem þarna áttist við, sem eðlilegt má telja, þar sem hið yngra vissi alls ekki, hvað handklæði voru. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR sem nýskeð fíraði sextugsafmæli sitt, fékk af því tilefni myudarlega afmælisgjöf frá Reykjavíkurbæ, eða lóð undir leikhús við Barónsstíg og Eiríksgötu. Nú kemur það á daginn, að bindindismenn hafa fengið næstu Ióð, með því fororði að á leikfélags- lóðinni (sem nú er orðin) skyldi reisa bæj- arbókasafn, og þykjast bindindismenn brögðum beittir, ef þeir eiga að fá leiklist- ina í nábýli í stað bókaramenntarinnar. Oss finnst engin ástæða til að amast við þessu. Hver veit jafnvel nema stúkimum kunni að fénast einn og einn leiklistarmað- ur í misgripum. MIÐSTJÓRNIR stjórnarflokkanna í Póllandi hafa tilkynnt, að frambjóðendur, sem gefa óframkvæm- anleg kosningaloforð, verði blátt áfram teknir lír umferð. Oss finnst nú meiri á- stæða til að taka þá úr umferð, sem gefa kosningaloforð, sem vel eru framkvæman- leg og svíkja þau síðan. Enginn lætur hvort sem er glepjast af hinum óframkvæman- legu. ÆK FORSETI hefur nú sagt pass og stopp við fisktollum, sem þingið hans var búið að samþykkja og bendir það til þess, að bæði hafi hann bein í nefinu og þyki jafnframt góð ýsu- flök. Segir hann, að svona tollur muni bitna alltof hart á þjóðum, sem vinveittar séu Bandaríkjunum og á þar auðvitað við Islendinga. Oss finnst þetta sterkur leikur hjá Æk, því að með þessari neitun sinni stingur liann algjörlega upp í Lúðvík og allan hans flokk. Hlökkuin vér til að lesa lofgreinar um hann í Þjóðviljanum, næstu mánuðina. ÍSLENZKAR KRÓNUR hafa undanfarið verið ein merkastá verzl- unar- og útflutningsvara Svisslendinga og þykir góð tilbreyting frá úrhjöllunum, sem hingað til liafa verið efstir á blaði í verzl- unarskýrslum þeirra. Má telja þetta mikla gleðifregn öllum þjóðræknum mönnum, er undanfarið hafa mátt horfa upp á fram- andi þjóðir fyrirlíta og forsmá krónuna okkar og kalla hana lina valútu. KOMMAR A HUSAVÍK hafa fyrir nokkru á fundi sínum fordæmt Moskvukommúnisma og þar'með afstöðu generalanna í Reykjavík. Að vonum þykir generölunum súrt í broti og vægast sagt helvíti hart að fá svona á sig einnmitt úr vögguplássi allrar samvinnulireyfingar á ts- landi. Á KVlKMYNDASlÐU Vísis lesum vér, að tekjidiæsta skepnan í Hollívúdd sé hundurinn Buster, en hann hefur innunnið eiganda sínum 100.000 doll- ara; þó er þess ekki getið, á hve löngum líma. Til samanburðar er nefnt, að apar og fílar fái ekki nema brot af þessari upp- hæð og þykja þó tekjuháir þar í landi, sum- ir hverjir. I sambandi við þessa fregn eru ýmsir að gera sér það til dundurs að reikna út, liver muni vera tekjuhæsta skepnan hér á landi, eftir stjórnarskiptin. ÞJÓÐVILJINN getur þess, að fyrsti górilluungi, sem fæð- ist af ófrjálsum foreldrum, hafi nýskeð séð dagsins ljós í dýragarðinum í Colúmbus, Ohio. Vér getum glatt kollega með því, að samkvæmt svarskeyti, er oss hefur borizt frá Columbusi, Obio, eru foreldrar ungans gömul vingargjöf frá Rússlandi (meðan enn var gott milli þjóðanna) og eru sjálfir fæddir í fangabúðum austur þar. Vonum vér þá, að kollega taki gleði sína. MORMÓNI . af íslenzkum ætturn, Gene Fulmer að nafui, liefur nýskeð unnið sér það til ágæt- is að sigra hinn fræga heimsmeistara í lmefaleik, Svigar Ray Robinson, og ber öll- um saman um, að þetta sé fyrsti mormóni, sem vinnur það afrek, siðan Jack Dempsev. Vér höfum aldrei fyrr vitað, að Dempse> væri mormóni, en þessi sigur þeirra trú- bræðranna gæti bent til þess, að þeir fái a-fingii í að berja frá sér í kvennabúrum sínum, þegar aðsóknin að þeim er mest. Eigi er enn vitað, hvorl þessi sigur hefur nokkur áhrif á framgang hnefaleikabanns- frumvarpsins, sem nú liggur fyrir Alþingi. AKUREYRINGAR hafa, eins og oft hefur áður vorið um getið, samþykkt afnám héraðsbanns á áfengi hjá sér, þar eð þeim ofbauð uppgangur Sigl- firðinga í þessu sambandi, og cr nú sjopp- an opnuð aftur, eða nánar til tekið á ann- an nýársdag. Engar beinar fregnir hafa borizt frá höfuðstað Norðurlands um neinn fyrirtaks drykkjuskap á nýja árinu, ef und- an er tekin tilkynning frá vatnsveitu Ak- ureyrar hinn 3. janúar, þar sem skorað er á alla borgara kaupstaðarins að spara vatnið. I FINNLANDI eða nánar til tekið í bænum Narpes er komin gata, sem heitir Akranesvegur, en þannig stendur á því, að téður bær er ein- mitt vinabær Akraness. Getur þessa í bæj- arblaði Akraness „í skemmtilegu bréfi frá Finnlandi“. Ennþá skemmtilegra heföi bréfið saint orðið, ef gatan hefði verið lát- in heita Ölafs-B-Björnssonargata. BANDARlKJAFORSETI befur nú ákveðið að hætta öllum áfengis- veitingum í veizlum þeim og móttökum, er iiann efnir til í hvíta húsinu, og mun mein- ingin, að andvirðið renni til Ungverjalands- hjálparinnar eða annarrar mannúðarstarf- semi. Sumir hvísla því nú reyndar, að aðal- tiigangurinn sé að losna við kokteilsnobb- ana, sem eru engu síður bvimleiðir þar en Iiér. Að sjálfsögðu verður hann þó að eiga eitthvert bragð ef Krúséff skvldi lieim- sækja hann, og kemur sér þá vel, að pela- fyllirí skuli vera velþekkt fyrirbæri þar westra, frá bannárunum, engu síður en liér á landi.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.