Spegillinn - 01.01.1957, Page 16

Spegillinn - 01.01.1957, Page 16
SPEGIULINN I kaffitímanum — Þjóðviljinn er samt við sama heygarðshornið enn þá, sagði hægri kratinn önugur og stakk upp í sig hálfri kexköku. — Það er meira en sagt verður um Alþýðumogg- ann, sem hrekst frá einu heygarðs- horninu til annars, ýmist stjórnar- blað eða í stjórnarandstöðu, anzaði línukomminn snúðugt. Þjóðvarnar- maðurinn ræskti sig virðulega: Já, þetta er hálf-skrítin stjórnarsam- vinna, stjórnarblöðin alltaf upp ú kant annað veifið; það er bezt að vera óháðir öllum og öllu eins og við Þjóðvarnarmenn. — Segðu mér eitt, hvort er Frjáls Þjóð stjórnar- blað eða í stjórnarandstöðu, og hvort vill Þjóðvörn heldur vinstri eða hægri stjórn? spurði fram- sóknarmaðurinn. — Já, hver er eiginléga stefna ykkar þjóðvarnar- manna í stjórnmálum? spurði Komminn. — Ég mótmæli því, að verið sé að leggja samviskuspurn- ingar fyrir menn, sagði sjálfstæðis- maðurinn og glotti. — Eiginlega sé ég ekki, að Þjóðvörn sé neinn flokkur lengur, og er nú raunar bættur skaðinn, sagði kratinn. — Þótt við Þjóðvarnarmenn kæmum ekki neinum manni á þing í þetta sinn, þá munum við halda áfram að berjast fyrir okkar stefnumál- um, sagði þjóðvarnarmaðurinn há- tíðlega. — Ef þið ættuð nú einhver stefnumál! Nei, þið hafið aldrei vitað hvað þið vilduð sjálfir, og þar sem enginn annar veit það heldur, þá er ekki von, að fólk geti fylgt ykkur að málum, sagði Komminn. — Alþýðubandalagið, eða öllu heldur vinstri stjórn rændi nú þessu eina málefni ykkar, og þið gátuð ekki einu sinni verið samþykkir því að framkvæma það; annars er okkur sjálfstæðismönn- um svo sem meinlítið við ykkur, sagði sjálfstæðismaðurinn spozk- ur. — Já, ætli það ekki; ef mál- flutningur ykkar þjóðvarnarmanna kemur einhverjum að notum, þá er það helzt íhaldinu, sagði fram- sóknarmaðurinn. — Við munum berjast fram í rauðan dauðan fyrir okkar þjóðlegu stefnu, sem er rammíslenzkt aíbrigði af lýðræði og sólíalisma; við látum ekki stjórna okkur frá Moskvu, eins og kommúnistar, og við erum ekki samþykkir áframhaldandi her- mangi og svínaríi, eins og Fram- sókn og Kratar, sagði Þjóðvarnar- maðurinn dálítið æstur. — Þið haf- ið aldrei vitað, hvað þið vilduð og vitið það ekki enn, þess vegna nennir fólkið ekki að elta ólar við ykkur lengur, sagði kratinn. — Mikið andskoti er nú Læknir Kvenna skemmtileg bók; ég gaf konunni minni hana í jólagjöf, en hún hefur ekki komizt að með að líta í hana enn þá, því að ég hef verið að lesa hana sjálfur, sagði s j álf stæðismaðurinn. — Þá er nú Eden greyið hættur í pólitíkinni; hann átti sér ekki viðreisnarvon eftir Egyptalands- ævintýrið, sagði Komminn. — Þeir ættu að taka sér það til fyrir- myndar Kommúnistaleiðtogarnir austantjalds, sagði kratinn. — Og Lúðvík karlinn lofar Sís og Hamra- fellinu að græða 120 shillinga á olíutonninu, sagði sjálfstæðismað- urinn. — íslenzk flutningaskip íslendingum; það er okkar kjörorð. Það skiptir ekki máli; hvort Sís eða einhver annar íslenzkur aðili á þau, sagði framsóknarmaðurinn. — Kaffitíminn er búinn, piltar, sagði reddarinn og stóð upp. En viðtalið við Morgunblaðið og sú uppljóstr- un sem í því felst er skýr og ótvíræð yfirlýsing um að ^essi þingmaður Alþýðu- flokksins standi nú við dyra- ^gætt íhaldsins, reiðubúinn til fatngöngu þegar húsráðendur telja heppilegt að veita hon- um viðtökú í þann söfnuð braskara og milliliða sem dæmdur var til pólitískrar úti- vistar með myndun núverandi ríkisstjórnar.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.