Spegillinn - 01.01.1957, Side 17
SPEGILLINN
15
WijjaAta yutyrϒin
Snemma á þessari öld grasseraði
nokkuð, bæði hér og annasstaðar,
hin svokallaða nýja guðfræði, og
mun aðallega hafa verið í því fólg-
in að steypa djöflinum af stóli og
þá sennilega koma upp einhvers-
konar lýðveldi púkanna. Þá var
farið að kenna, að menn færu nú
kannske ekki alveg fortakslaust til
helvítis fyrir smávægilegar yfir-
sjónir, að minnsta kosti ekki ef
einlæg iðrun væri til staðar. Þetta
var að ýmsu leyti nokkuð góð
guðfræði, að minnsta kosti gerði
hún talsverða lukku hjá þeim, sem
eitthvað voru breyzkir og vissu af
því, og þeir úr hópnum, sem efn-
aðri voru, gáfu stundum stórfé til
kirkju sinnar, og hafa þá vonandi,
að loknu jarðlífi, aldrei farið lengra
en til smápúkanna — enda voru
þeir flestir smápúkar sjálfir.
Þetta var nú í þá daga, en á
öllum þeim tíma, sem síðan er
liðinn, fer vitanlega ekki hjá því,
að margar breytingar hafa orðið á
viðhorfi manna til þessara hluta,
en flestar eru þær ómerkar og
verða ekki hér raktar, „enda eng-
inn kostur í stuttu útvarpserindi“,
eins og þeir segja í útvarpinu, þeg-
ar þeir komast ekki einusinni fram
úr formálanum. Aðeins verður það
allranýjasta gert að umræðuefni.
Þeir eru alltaf að finna nýjar og
nýjar — þ.e. hundgamlar — perga-
mentsrollur austur í „löndum fyrir
botni Miðjarðarhafs“, og nú sein-
ast fannst ein við sjálft Dauðahaf-
ið, sem þykir merkilegust allra og
hefur undanfarið verið í höndun-
um á Yigael Yadin, sem er „stríðs-
maður og fræðimaður“ við háskól-
ann í Jerúsalem. Á þessari rollu
sést, að Lamek, faðir Nóa en son-
ur Metúsalems, hefur kvænzt syst-
ur sinni, en slíkt var alsiða þá og
varðaði ekki við neina paragraffa.
En Lamek gamli var nú ekki alveg
viss um, að hann ætti neitt í Nóa,
þegar hann kom í heiminn, enda
var Lamek, ef trúa má ritningunni,
BORGAKSTJ ÓRINN
í Reykjavík sýndi af sér |>að mannúðar-
bragð um afliðin jól að láta strætisvagna
halda uppi ferðum til iitliverfa borgarinn-
ar til miðnættis, og ekki nóg með það,
hálfgerður skruggublesi, en Nói
hinsvegar svo efnilegur, að hann
reisti sig upp í höndum ljósmóður-
innar og fór strax að snakka við
Drottinn réttlætisins, en það var
alveg óvenjulegt, jafnvel á þeim
tíma. Er skemmst frá því að segja,
að Lamek reifst þarna við systur
sína og sagði, að hún hefði átt
eitthvað gott við einhverja vernd-
arengla eða fallna engla, en hún
svaraði bara skætingi og sagði að
drengurinn líktist bara í móður-
ættina, eins og bezt mætti heyra
á öllu kjaftæðinu, sem í honum
væri, svona strax eftir fæðinguna.
heldur gátu menn ferðazt ókeypis með
þeim, frá klukkan hálffimm. Auðvitað var
þetta óspart notað, en mest hafði þó verið
aðsóknin að strætóinu, sem horgarstjóri
keyrði sjálfur.