Spegillinn - 01.01.1958, Side 20

Spegillinn - 01.01.1958, Side 20
1B SPEGILLINN Ltankjörstaðakosning — Það var nú siður hér í gamla daga á kosningadaginn, að maður átli einhverja glætu, sagði vinur minn, Rúnki róni, þegar ég liitti liann á Kalkofnsveginum liérna um daginn. — Já, en það er víst allt búið að vera, sagði ég. — Heyrt hef ég því fleygt, að í nýju kosningalögunum standi, að hver sá, sem öldrukkinn er á kjördegi, skuli liafa fyrirgert kosn- ingarrétti sínum — og kjörgenginu með, og það er nú verst fyrir þig, Rúnki minn. Við megum nógu illa við að missa atkvæðið þitt, þó að hitt bættist ekki við. — Þetta spursmál lief ég einmitt verið að íliuga á einverustundum á Grand Hótel, sagði Rúnki. Og veiztu hvað bísarnir bentu mér á að gera, til þess að geta verið kjafthýr kosn- ingadaginn? -— Nei, hver heldurðu, að geti lóð- að sálardýpi þeirra, úr því að Ólafur sálfræðingur Gunnarsson hefur ekki verið viðstaddur — eða var hann kannske viðstaddur? — Nei, hann hafði tilkynnt for- föll, sagði Rúnki, — en bísarnir bentu mér á að grípa einhverja sólskins- stund þegar ég væri edrú en þó ekki um of, og kjósa bara í pósthús- kjallaranum, og þá gæti ég verið eins og ég á að mér á sjálfan kjördaginn, rétt eins og í gamla daga. -— Þá ættirðu að ljúka þessu af strax, sagði ég. — Þú getur ekki betri verið en þú ert nú. — Jú, þú segir nokkuð, en ef þú ætlar að fara að draga mig þangað, verðurðu að gefa mér fyrir einni. — Það ætti að vera mín minnsta kúnst, svaraði ég. -— Hérna er ég með kosningasjóðinn í vasanum og hann geturðu fengið eins og hann leggur sig. Og ég lief það fyrir góðverkið að þurfa ekki að taka fleiri sálir upp af götu minni, því að þetta gengur ekki fyrir sig auralaust, frekar en kristni- boðið í Konsó. Og ég seilist í kosn- ingasjóðsvasann og rétti 50-kall að Rúnka. — Alltaf eruð þið samir við ykkur, Rúnki og ætlaði helzt að svífa á mig og kyssa mig, en ég fékk brugðið mér undan og fullvissaði hann um, að liann ætti heldur að kyssa þami, sem lagt liefði til aurinn, en af því væri ég saklaus. — Jæja, við skulum þá flýta okkur að hrista þetta af, sagði Rúnki. — Það er eina bótin, að það er ekki nema snertuspölur úr þessum kjallara og í apótekið. — Ertu enn í kogaranum? spurði <%• — Ertu bilaður, maður? Snerti ekki nema glussa, og meira að segja innvortisglussa, samkvæmt læknisráði. Við komum nú í kjallarann. Altileg- ur maður, sem bafði þarna mest að segja, leit á okkur og spurði, hvort við ætluðum að kjósa báðir. — Nei, svaraði ég. — Það er bara þessi maður hérna. — Þú hefur gert þér ljósar breyt- ingar þær, sem orðnar eru á kosninga- lögunum og þýðingu þeirra? spurði kjörstjórinn Rúnka. — Ojæja, ekki lief ég nú lært þær utanbókar, eða er nokkuð í þeim um mig? — já, hér stendur, að sá sem neyta vill atkvæðaréttar síns utan kjörstað- ar, skal gera sem nákvæmasta grein fyrir því, hvar hann muni verða staddur á kjördegi. — Já, það var nú það, sagði Rúnki. — Mér er víst óhætt að fullyrða, að ég verði annaðhvort í hótelinu eða kjallaranum, og það er nú ekki nema stutt bæjarleið á milli, svo að þið heimtið vonandi ekki meiri nákvæmni í landafræðinni. — Eg bóka þá það, sagði stjórinn. — Á nú að fara að skrifa mig upp? spurði Rúnki. — 0, sussunei; óttaztu ekki, sonur sagði ég. — En það stendur í nýju lögunum: „Skal kjörstjóri færa upp- lýsingar þessar í bók, sem yfirkjör- stjóri löggildir í þessu skyni“. Þú færð enga sekt fyrir það. — Jæja, þetta verður víst svo að vera, en ekki er ég lu-ifinn af að láta skrifa mig svona upp, sagði Rúnki. -— Nú kemur að því versta, sagði kjörstjórinn. Hérna stendur í lögunum: „Að þessu loknu fær kjósandi afhent fylgibréf .... — Fæ ég sjálfur frímerkin af fylgi- bréfinu, eða rennur það til póstmanna- sjóðs? spurði Rúnki. —- Þau eru til vonar og vara höfð ófrímerkt, sagði stjórinn, „ . . . með áföstum kjörseðli, og skal hann að- stoðarlaust, í einrúmi og án þess að nokkur maður sjái, rita atkvæði sitt á kjörseðilinn á þann hátt, er að framan greinir . . . “ — Það greinir ekkert að framan, greip ég fram í. — Eigum við ekki að glugga í þetta nýja plagg Alþingis? Við — kjörstjórinn og ég — förum nú að glugga í nýju lögin og það kemur í ljós, sem ég sagði, að það greindi ekkert að framan. — Það hlýtur að vera meiningin, að það greini að framan í gömlu lögunum, sagði stjórinn. — Eigum við að fara að lifa undir einliverjum gömlum og úreltum lög- um? sagði ég, einbeittur. — Ég heimta að fá að aðstoða þenna liáttvirta kjós- anda, sem sökum handskjálfta hefur ekki getað á penna haldið, svo lengi sem elztu menn muna. — Nei, það kemur nú bara ekki til nokkurra mála, sagði stjórinn. Og svo var Rúnka ýtt inn í leyniklefann, en ég varð eftir lijá stjóranum, sem gaf mér í nefið af mikilli gestrisni, til þess að hafa mig góðan. Fyrirtaks maður, stjórinn og líklega ekki hon- mn sjálfum að kenna, að hann hefur lent í þessu. Ég var fljótur að taka Rúnka undir vængbeinið og draga hann út á götu. — Viltu láta liann Eystein þéna Framh. á bls. 13.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.