Spegillinn - 01.06.1968, Blaðsíða 7

Spegillinn - 01.06.1968, Blaðsíða 7
SPEGILLINN 7 Hamborg. Reeperbahn. Tíu ára snáði olnbogar sig áfram þar til hann vindur sér að prúðbúinni maddömu og spyr: Geturðu sacjt mér hvar Vændiskvennahúsið er? Guð sé oss næstur, hrópar maddaman upp yfir sig og afmynd- ast í framan af spillingu heimsins, og ekki nóg með það, hryllingur- inn nær slíkum tökum á henni að hún lúber stráksa með sólhlífinni sinni, og þar með leggur snáðinn auðvitað á flótta og hleypur beina leið heim til sín. — Hvað er að sjá þig drengur, segir móðir hans, því verkin sýna merkin. — Það var kerlingartrunta sem gaf mér svona utanundir og það út af engu. Ég var bara að spyrja hana um hvar Vændiskvennahúsið væri. Vændiskvennahúsið, hrópar móðirin og ætlar að sturlast af undrun, ertu orðinn brjálaður, ef þú nokkurntíma . . . og gerir sig líklega til að lúskra á stráksa, en þá segir hann: Nú ef ekki má einu- sinni nefna staðinn þá getur pabbi sótt frakkann sinn sjálfur. Hann var sundkappi, steypti sér úr tíu metra hæð með sveiflu og snúningi og öllum hundakúnstum og þegar honum skaut upp renndi hann sér áfram eins og höfrungur. Þegar dró úr mesta hraðanum kom stúlka syndandi upp að hliðinni á honum, og hún gat ekki orða bund- izt. Glæsilegt, sagði hún, og þar með voru þau farin að spjalla sam- an, og hann trúði henni fyrir hve gífurlega æfingu hann hafði lagt á sig til að ná þessum árangri. Svo slitu þau talinu og stúlkan hélt á- fram að synda, já og hún synti og Og svo er það þessi með mann- inn sem fór í bíó til að horfa á eina af þessum sænsku með alla kyn- dirfskuna. Jú allt passaði, þegar komið var nokkuð fram í myndina birtist á tjaldinu hópur glæstra ungmeyja. Þær fóru í bað í einu af þessu yndislegu vötnum. Og það var sumar og sól og þær tíndu af sér spjarirnar, kjólana,, undirfötin, brjóstahaldarana, og ætluðu að fara að smeygja af sér síðasta pálmalaufinu — æ, kemur þá ekki járnbrautarfjandi brunandi og ryð- ur sér áfram milli myndavélarinnar og meyianna Vinur vor sá sem sé synti stanzlaust í eina fimm sex tíma, og loksins sté hún uppúr vatninu hress og kát. Maðurinn var alveg undrandi á þessu mikla út- haldi stúlkunnar, einkum þar sem hún var nú ekki lengur nein æsku- rós. Fram og aftur, fram og aftur hálfan daginn, sagði hann, það er nú meira svaka þolið, með leyfi fröken hvar hafið þér lært að synda? Ég — sagði stúlkan eins og ekk- ert væri, ég stundaði vændi í Fen- eyjum. ★ ekkert nema þessa skröltandi vagna, og það var sko klárt að miðarnir voru ekki keyptir til þess að góna á þá. Og þar að auki var þetta engin hraðlest, því þegar hún var loksins komin framhjá voru stelpurnar allar komnar á sund út í vatnið. En vinur vor fór samt í bíó daginn eftir og hinn og hinn þar til hann hafði farið átta sinnum í röð. Þá gat dyravörðurinn ekki stillt sig um að spyrja: Já hversvegna? Jú sjáðu til, einhverntíma hlýtur helvítis járnbrautinni að seinka. ★

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.