Spegillinn - 01.06.1968, Qupperneq 10
10
SPEGILLINN
FORSÍÐAN
Aldrei þessu vant prýðir vor ágæti forsætisráðherra forsíðu blaðs-
ins. (Að okkur skyldi hugkvæmast þetta, sýnir bezt þá gífurlegu hug-
myndaauðgi, sem ríkir innan ramma Spegilsins). — Þarna stendur
hann, þessi alúðlegi jólasveinn og réttir fram jólaglaðning sinn, þrátt
fyrir allt það aðkast, sem hann hefur orðið fyrir. — Meðal annarra
orða Hvað er ein gengisfelling á milli vina?
TILKYNNING
Kvenfélag Mjóstrætis hélt aðalfund sinn í síðustu viku. Fundarsókn
var góð, enda mættu félagskonur allar sjö með tölu. Frú Geðprýður
Guðmundsson lét af stjórn félagsins, en í hennar stað var kosin
Spjóthildur Spyndils, en hún sigraði kosninguna með þrem atkvæð-
um gegn einu. Þessi óvænti kosningasigur frú Spjóthildar mun stafa
af því, að í félaginu eru tvær systur hennar og tengdamóðir. Þrjár
félagskonur sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Margar merkilegar sam-
þykktir voru gerðar á fundinum, m.a. eftirtaldar:
Áskorun til ríkisstjórnarinnar þess efnis, að hún hlutist til um taf-
arlausan brottrekstur rússneska hernámsliðsins frá Tékkóslóvakiu.
Áskorun tii Alþingis þess efnis, að sjá til þess, að hver sá þing-
maður, sem minntist á áfengan bjór, verði þegar í stað gerður brott-
rækur ú/ þingsölunum, að ekki sé meira sagt.
Að lokum samþykkti fundurinn, að láta þegar í stað hefja kirkju-
byggingu Mjóstrætissafnaðar og ekki siðar en um næstu áramót.
Um leiö og
jólahátidin
ge.igur i garö,
viljum vér
minna á nauðsyn
helmilis
tryggingar.
Gleðileg jól,
gæSurikt komandi ár!
TRYGGINGAR HF
PÖSTH ÚSSTRÆTI S
SÍMI 17700
fíVAÐA ÓSfCÖP ER GVENDUR.
ALLT / E/NU V/NSÆLL HOA
KVENÞOÓÐ/NN/ ?
ÞAÐ GERA NV3U
FÖT/N HANS FRA
ANDERSEN OG LAUTH